Taka þarf á gjörbreyttum aðstæðum í leikskólum Inga Þóra Þóroddssdóttir skrifar 6. maí 2026 20:48 Það er ekki lengur hægt að horfa fram hjá stöðunni í leikskólum Reykjavíkur. Þeir sem starfa á gólfinu sjá breytingarnar skýrt. Álag hefur aukist, þarfir barna hafa orðið flóknari og rýmið til að sinna faglegu starfi hefur þrengst. Reynsla síðustu ára sýnir okkur hvað skiptir máli. Þegar hópar barna voru minni, eins og sást til dæmis á tímum Covid, jókst vellíðan margra barna og faglegt starf varð markvissara. Þetta er ekki tilfinning. Þetta er reynsla úr starfinu. Í dag er hins vegar algengt að stórir barnahópar séu saman í takmörkuðu rými. Innan sama hóps eru börn með mjög ólíkar þarfir. Börn sem eru að tileinka sér íslensku, börn sem glíma við kvíða eða félagslega erfiðleika, börn með hegðunarvanda eða skynúrvinnsluvanda. Þetta er raunveruleikinn í leikskólum í dag. Skipulag leikskólanna endurspegla ekki þessa þróun. Barngildisreglan, sem ákvarðar fjölda barna á deild, tekur ekki nægilegt tillit til þessara breyttu þarfa. Starfsfólk upplifir að það hafi ekki nauðsynleg úrræði til að sinna starfinu af þeirri fagmennsku sem það vill. Þetta er ekki gagnrýni á starfsfólk leikskóla. Þvert á móti. Þar starfar öflugt fagfólk sem heldur kerfinu gangandi við erfiðar aðstæður. Það er kerfið sjálft sem þarf að breytast. Breytinga er þörf Stefna Flokks fólksins er skýr. Við viljum raunverulegar umbætur sem byggja á því sem við vitum að virkar. Fækka þarf börnum á hverri deild og leikskólarými þarf að vera þannig að hægt sé að skapa rólegra og öruggara umhverfi fyrir börn. Þess vegna þarf að bæta hljóðvist og aðstöðu þannig að daglegt starf verði ekki stöðug áreynsla fyrir bæði börn og starfsfólk. Bráðnauðsynlegt er að tryggja næga mönnun og raunverulega afleysingu svo kerfið virki. Endurskoða þarf barngildisregluna frá grunni þannig að hún taki mið af raunverulegum þörfum barna í dag, ekki af forsendum fortíðar. Snemmtæk íhlutun er lykilatriði. Ef við grípum börn í vanda fyrr, áður en vandi verður alvarlegur, aukast líkur á betri líðan, meiri færni og farsælli skólagöngu. Þannig væri hægt að afstýra meiri og langvarandi vanda sem bætir líðan og möguleika barna og er að auki hagkvæmt fyrir samfélagið til lengri tíma. Leikskólinn á ekki að vera geymslustaður. Hann er fyrsta stig menntakerfisins og grunnur að framtíð barna. Þess vegna þarf að hlusta á þá sem starfa inni í skólunum, leikskólakennara og starfsfólk sem þekkir raunveruleikann. Höfundur er leikskólastarfsmaður og skipar 14.sæti á lista Flokki fólksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar