Hvítt fyrir börn sem biðja um frið Birna Þórarinsdóttir skrifar 6. maí 2026 12:16 Fyrir ári síðan horfðumst við í augu við skelfilega tölfræði: eitt barn af hverjum sex í heiminum bjó við vopnuð átök og afleiðingar þeirra. Við hjá UNICEF vildum gera eitthvað stórt til að vekja fólk til umhugsunar um hvað þessar afstæðu tölur þýða í raun. Úr varð einstök myndlistarsýning sem unnin var í samstarfi við ríflega 800 börn í 17 Réttindaskólum UNICEF um allt land. Það tekur tíma að vinna að svona stóru verkefni; við vorum í sambandi við myndlistarkennara skólanna, börnin fengu fræðslu um stríð og réttindi barna og svo það verkefni að teikna, lita eða skapa mynd af einu barni, það þurfti að safna myndunum saman og setja í eina, heildræna sýningu. Þetta gekk allt eins og í sögu. Annað gekk ekki eins vel. Heimsmyndin versnaði svo hratt á þessum mánuðum að þegar upp var staðið og sýningin var hengd upp á veggi Hörpu í lok apríl þá var hlutfallið komið upp í eitt barn af hverjum fimm. Fimmta hvert barn. 520 milljónir barna búa við stríðsátök í heiminum í dag, í maí 2026. Hvernig komum við þeirri tölu fyrir í höfðinu á okkur? Hún jafngildir því að ef börn sem búa við stríðsátök væru íbúar eins ríkis, þá væri það þriðja fjölmennasta land í heiminum, á eftir Kína og Indlandi. Þetta eru ekki afleiðingar náttúruhamfara eða afla sem við höfum ekki stjórn á. Stríð er framhald stjórnmála með öðrum aðferðum, sagði einn helsti hernaðarfræðingur sögunnar, Carl von Clausewitz, eftir reynslu sína af Napóleonsstríðunum. Stríð er pólitík, afleiðing ákvarðana fullorðins fólks sem getur ekki - vill ekki - leysa málin á friðsaman hátt og velur „aðrar aðferðir.“ Afleiðingarnar eru skelfilegar: ef þær eru ekki banvænar þá munu þær marka lífsvegferðina fyrir alla sem fyrir þeim verða. Og í dag eru það 520 milljónir barna. Við þurfum að horfast í augu við ábyrgðina sem við berum á því að velja átök yfir umburðarlyndi, sundurlyndi í stað skilnings. Börn bera enga ábyrgð á þessum ákvörðunum en taka kostnað þeirra á sig með lífi sínu, limum og framtíð. Listakonan Olga Guðrún Árnadóttir gaf út lagið Myndin hennar Lísu á plötunni Babbidí-bú árið 1994, á ári þegar mannkynið spurði sig stórra samviskuspurninga vegna stríðanna í fyrrum Júgóslavíu og Rúanda. Sama ár var hafin vinna hjá Sameinuðu þjóðunum um að taka saman fyrstu heildstæðu skýrsluna um áhrif stríða á börn. Skýrslan var unnin af Graca Mahel, fyrrum ráðherra frá Mósambík (enn öðru stríðshrjáðu landinu) og markaði tímamót þegar hún kom út tveimur árum síðar, fyrir 30 árum. Þar sagði Graca Mahel meðal annars: „Börn eru bæði ástæða okkar til að berjast gegn verstu birtingarmyndum hernaðar og besta vonin okkar um að takast það.“ Listinni tekst þó betur að hreyfa við okkur heldur en skýrslum. Þess vegna er ástæða til að gera sér ferð í Hörpu á næstu dögum og upplifa einstaka myndlistarsýningu barnanna 800. Einnig þess vegna fær Olga Guðrún lokaorðin hjá mér: Gult fyrir sól, grænt fyrir líf, grátt fyrir þá sem reka menn út í stríð. Hvítt fyrir börn, sem biðja um frið biðja þess eins að fá að lifa' eins og við. Er ekki jörðin fyrir alla? Taktu þér blað, málaðu' á það mynd þar sem að allir eiga öruggan stað. Brún augu og blá, hjörtu sem slá hendur sem fegnar halda frelsinu á. Þá verður jörðin fyrir alla. Höfundur er framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birna Þórarinsdóttir Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar