Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. maí 2026 07:37 Frjósemi hefur aldrei verið minni en nú, frá því að mælingar hófust. Getty Alls fæddust 4.387 börn lifandi árið 2025, örlítið fleiri en fæddust árið 2024, þegar 4.311 börn fæddust lifandi. Um var að ræða 2.292 drengi og 2.095 stúlkur, en það jafngildir því að 1.094 drengir fæðist á móti hverjum 1.000 stúlkum.
Frá þessu er greint á vef Hagstofu Íslands. Þar segir einnig að frjósemi hafi staðið í stað en hún var nákvæmlega sú sama árin 2024 og 2025, eða 1,5 barn á konu. Frjósemi hefur aldrei verið minni frá því að mælingar hófust árið 1853 en miðað er við að konur þurfi að eignast 2,1 barn til að viðhalda mannfjöldanum. „Frjósemi á Norðurlöndunum hefur minnkað á undanförnum árum, líkt og á Íslandi. Á síðasta ári var fjöldi lifandi fæddra barna á hverja konu rúmlega 1,4 í Svíþjóð, um 1,5 í Noregi og Danmörku en í Finnlandi var hún 1,3. Í Færeyjum fór frjósemin upp í 2,1 árið 2025 miðað við 1,9 árið á undan. Á Grænlandi var frjósemin 1,7 árið 2025 en hún hefur minnkað hratt síðustu ár og var þannig 2,12 árið 2020,“ segir á vef Hagstofunnar. Þar segir einnig að aldursbundin fæðingartíðni mæðra undir tvítugu sé mjög lág, eða 3,1 börn á hverjar 1.000 konur. Á árunum 1961 til 1965 fæddust 84 börn á hverjar 1.000 konur undir tvítugu. Talað er um konur á vef Hagstofunnar en leiða má líkur að því að í einhverjum tilvikum væri nær að tala um að börn hafi verið að eignast börn. Hagstofa getur þess einnig að á árunum 1932 til 2018 hafi aldursbundin fæðingartíðni alltaf verið hæst í aldurshópunum 20 til 24 ára og 25 til 29 ára en árið 2019 hafi fæðingartíðnin reynst hæst innan aldurshópsins 30 til 34 ára. „Meðalaldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síðustu áratugi og eignast konur nú sitt fyrsta barn að jafnaði síðar á ævinni en áður. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda áratuginn hefur meðalaldur farið hækkandi og var 29,2 ár í fyrra.“
Frjósemi Börn og uppeldi Mannfjöldi Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira