Veistu á hvaða lyfjum þú ert? Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar 5. maí 2026 15:31 Lyf eru ein stærsta framfarasaga nútíma læknisfræði. Þau hafa bjargað ótal mannslífum, bætt lífsgæði og gert okkur kleift að lifa lengur og betur. En eins og með margt annað í lífinu er jafnvægi lykilatriði. Það er ekki alltaf sjálfgefið að lyf sem voru nauðsynleg á einum tímapunkti séu það enn í dag. Ein mikilvægasta leiðin að því fá mest út úr lyfjanotkuninni er að þú, sem sjúklingur, sért virkur þátttakandi. Að þú vitir hvaða lyf þú tekur, til hvers þau eru og hvort þau öll séu enn nauðsynleg. Rannsóknir sýna að þetta eitt og sér getur haft veruleg áhrif til hins betra. Þegar líkaminn breytist Líkaminn okkar breytist með tímanum. Efnaskipti breytast og viðbrögð við lyfjum geta breyst. Þetta er ekki ósvipað og þegar sjónin breytist, þá endurskoðum við hvort gleraugun sem við eigum í dag eigi enn við. Sama á við um lyfin okkar. Það sem hentaði fyrir fimm eða tíu árum er ekki endilega besti kosturinn í dag.Tökum algengt dæmi: Sigga er á áttræðisaldri og hefur tekið svefnlyf frá því hún missti manninn sinn fyrir um tuttugu árum. Lyfið hjálpaði henni á erfiðum tíma og hefur fylgt henni síðan. Með árunum hafa bæst við fleiri lyf, eins og oft gerist. En líkaminn hennar í dag er ekki sá sami og þá. Svefnlyf geta aukið sljóleika og haft áhrif á jafnvægið, sérstaklega hjá eldra fólki. Fyrir Siggu getur það þýtt aukna byltuhættu sem getur haft alvarlegar afleiðingarnar. Enginn tók ranga ákvörðun á sínum tíma. En spurningin er: er lyfið enn að þjóna sama tilgangi í dag? Veistu á hvaða lyfjum þú ert? Yfirsýn og öryggi Með hækkandi aldri fjölgar oft lyfjum sem fólk notar og því skiptir meira máli með hverju árinu að hafa yfirsýn. Því fleiri sem lyfin verða, þeim mun meiri eru líkurnar á milliverkunum og aukaverkunum. Þess vegna er sérstaklega mikilvægt að hafa yfirsýn, leita ráða hjá heimilislækni og spyrja reglulega: „Þarf ég öll þessi lyf enn?“. Talið er að allt að 20% einstaklinga sem taka lyf séu í áhættu fyrir því að hljóta meiri skaða en ávinning af lyfjameðferð sinni. Þetta er hópur sem við viljum lágmarka eins og kostur er. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin tekur alvarlega á þessum málaflokki og hefur komið á fót gæðaátaki tengt skynsamlegri lyfjanotkun sem Ísland er hluti af og kallast Lyf án skaða. Lyfjanotkun á Íslandi er í mörgum lyfjaflokkum hærri en þekkist víða annars staðar. Það eitt og sér er ástæða til að staldra við og skoða málið nánar. Það er samt sem áður áfram mikilvægt að skapa ekki ótta við lyf, heldur auka þekkingu og meðvitund. Skynsamleg lyfjanotkun Skynsamleg lyfjanotkun snýst ekki um að hætta á lyfjum að tilefnislausu, heldur um að tryggja að hver einasta lyfjameðferð hafi skýran tilgang, raunverulegan ávinning og sem minnstar aukaverkanir. Slíkar ákvarðanir verða best teknar í opnu samtali milli sjúklings og heilbrigðisstarfsfólks, þar sem þín reynsla og þín markmið skipta máli. Í apótekum er hægt að leita til lyfjafræðinga til að skilja lyfin sín, við hverju þau eru, hvernig þau virka og hvernig best er að taka þau. Á heilsugæslu og sjúkrahúsum starfa lyfjafræðingar í nánu samstarfi við lækna þar sem farið er skipulega yfir lyfjameðferð einstaklinga með það að markmiði að bæta öryggi og árangur. Tækifærin og markmiðið Hér á Íslandi eru öll tækifæri til staðar til að nýta þessa nálgun betur. Það krefst ekki stórra kerfisbreytinga heldur fyrst og fremst aukinnar meðvitundar bæði frá heilbrigðiskerfinu og okkur sjálfum sem notendum þess. Markmiðið er einfalt en mikilvægt: að meðferð þín byggist á lyfjum sem gagnast þér, en ekki lyfjum sem eru orðin óþörf. Kannski byrjar þetta allt á einfaldri, en afgerandi spurningu: Veistu á hvaða lyfjum þú ert? Höfundur er lyfjafræðingur og formaður Lyfjafræðingafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lyf Heilbrigðismál Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar