Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir, Berglind Gísladóttir, Birna María B. Svanbjörnsdóttir, Guðmundur Engilbertsson, Hermína Gunnþórsdóttir, Jóhann Örn Sigurjónsson, Rúnar Sigþórsson og Sólveig Zophoníasdóttir skrifa 6. maí 2026 09:00 Í þessari þriðju grein í greinaflokknum um gæði kennslu er áherslan á kennsluhætti sem skila árangri. Niðurstöður síðustu PISA-könnunar hafa vakið áhyggjur og umræður á Íslandi. PISA mælir skilning, rökhugsun og getu nemenda til að beita þekkingu, til dæmis í nýjum aðstæðum. Verkefnin gera miklar kröfur til lesskilnings, að nemendur skilji hvað er verið að spyrja um, geti valið viðeigandi aðferðir til að leysa viðfangsefni og rökstutt lausnir sínar. Margir velta fyrir sér hvers vegna árangurinn í PISA er ekki betri en raun ber vitni og hvað megi gera til að bæta stöðuna. Í þeirri umræðu er mikilvægt að forðast einfaldar skýringar en byggja frekar á því sem rannsóknir segja okkur um nám og kennslu. Því er eðlilegt að leita skýringa í því hvernig kennsla styður, eða styður ekki nægilega, slíka hugsun og hæfni. Rannsókn á kennslu QUINT-rannsóknin er dæmi um rannsókn á gæðum kennslu sem getur veitt mikilvæga innsýn í kennsluhætti. Niðurstöður byggja á myndupptökum úr íslenskum og norrænum kennslustofum á unglingastigi þar sem gæði kennslu er greind með alþjóðlega viðurkenndum mælikvörðum. Í rannsókninni er sjónum beint að kennslunni sjálfri og því hvernig kennsla fer fram í daglegu skólastarfi. Með rannsókninni gefst einnig möguleiki á samanburði á kennsluháttum á Norðurlöndum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna meðal annars að á Íslandi líður nemendum almennt vel í skólanum og kennarar leggja sig fram við að styðja þá. Þetta eru mikilvæg gæði sem ekki má vanmeta. Svör nemenda við spurningum um kennsluhætti og námsumhverfi í tengslum við rannsóknina styðja þetta enn frekar og benda til þess að þeir séu almennt ánægðir með kennarana sína. Samhliða þessu benda niðurstöður til þess að nemendum sé ekki alltaf nægilega ljóst hvað þeir eiga að læra og hvers vegna það skiptir máli. Þannig vinna nemendur oft verkefni án þess að námsmarkmið séu skýr og sýnileg, sem gerir þeim erfiðara fyrir að tengja verkefnin við fyrra nám og viðmið um þá hæfni sem stefnt er að. Gæði kennslu Skýr námsmarkmið hjálpa nemendum að beina athyglinni að því sem skiptir máli í námi, skipuleggja hugsun sína og meta eigið nám. Þegar markmiðin eru óljós getur námið orðið yfirborðskennt og vitsmunaleg áskorun (röksemdafærsla, ályktunarhæfni og greinandi hugsun nemenda) veik. Rannsóknir sýna að endurgjöf kennara sem tengd er við námsmarkmið nemenda er lykilatriði í að upplýsa þá um námsframvindu, leiðbeina þeim um hvernig þeir geti bætt sig og stuðlar að því að þeir nái settum markmiðum. Aftur á móti veitir almenn og óljós endurgjöf, til dæmis í formi hróss, ófullnægjandi upplýsingar og beinist síður að því að efla hugsun og nám nemenda. Kennsla þar sem nemendur eru hvattir til að taka virkan þátt í eigin námi styður við hæfni þeirra til að beita þekkingu, rökstyðja lausnir og yfirfæra skilning á nýjar aðstæður. Niðurstöður QUINT rannsóknarinnar sýna glöggt að nauðsynlegt er að fjölga tækifærum nemenda til að útskýra hugmyndir sínar, bera saman lausnir og ræða þær. Þær sýna einnig mikilvægi þess að staldra við í kennslunni og gefa nemendum svigrúm til að byggja upp skilning, í stað þess að fara hratt yfir verkefni eða námsefni og halda áfram án nægilegs skilnings. Niðurstöðurnar sýna enn fremur fram á nauðsyn þess að auka vitsmunalega áskorun í kennslu og námi með því að leggja meiri áherslu á að nemendur beiti greinandi hugsun og dýpki skilning sinn með merkingarbærum viðfangsefnum. Til dæmis þarf að gæta þess, þegar veitt er aðstoð við verkefnavinnu nemenda, að hugsunarvinnan sé áfram þeirra en ekki kennarans eða þess sem aðstoðar. Niðurstöðurnar sýna ýmis dæmi um gæði kennslu þar sem samvinna nemenda er í fyrirrúmi, þeir ræða saman um námið, útskýra og færa rök fyrir máli sínu. Þá eykst vitsmunaleg áskorun með markvissum hætti og námið verður ekki aðeins æfing í aðferðum heldur þjálfun í hugsun. Skilningur dýpkar þegar nemendur fá tækifæri til að orða eigin hugmyndir og setja þær í stærra samhengi. Þannig þróast skilningur og hæfni í gegnum vitsmunalega áskorun, skýr markmið, endurgjöf og samræður. Lokaorð Ef við viljum bæta hæfni nemenda til að skilja viðfangsefni náms og leysa þau, þarf að ræða gæði kennslu af yfirvegun, byggja á gögnum og tryggja kennurum aðgang að faglegum stuðningi og markvissri starfsþróun. Leggja þarf áherslu á að þróa sameiginlegan fagorðaforða um kennslu og kennsluhætti, sem gerir kennurum kleift að ræða kennslu á skipulegan og markvissan hátt, rýna í eigin starfshætti og læra hver af öðrum. Slíkur sameiginlegur skilningur styrkir faglega samræðu og kennslu sem byggir markvisst undir skilning og hæfni nemenda. Þannig er áherslan ekki á róttækar breytingar heldur vel skipulagða og markvissa starfsþróun sem stuðlar að samstarfsmenningu og rýni í eigið starf. Þegar niðurstöður PISA eru skoðaðar í ljósi rannsókna á gæðum kennslu, eins og QUINT, verður ljóst að betri árangur næst ekki með því að leggja áherslu á umfang eða yfirferð, heldur þarf að beina sjónum að kennsluháttum sem byggja undir skilning, rökhugsun og dýpra nám nemenda. Höfundar: Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ Berglind Gísladóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ Birna María B. Svanbjörnsdóttir, dósent við Kennaradeild HA Guðmundur Engilbertsson, lektor við Kennaradeild HA Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Kennaradeild HA Jóhann Örn Sigurjónsson, Sérfræðingur í stærðfræðimenntun hjá MMS Rúnar Sigþórsson, prófessor emeritus við Kennaradeild HA Sólveig Zophoníasdóttir, aðjúnkt við Kennaradeild HA Heimildir Anna Kristín Sigurðardóttir, Hermína Gunnþórsdóttir og Rúnar Sigþórsson (ritstj.). (2025). Gæði kennslu. Námstækifæri fyrir alla nemendur. Háskólaútgáfan. https://haskolautgafan.is/products/gaedi-kennslu-namstaekifaeri-fyrir-alla-nemendur?taxon_id=4 Klette, K., Magnusson, C.G. og Sigurjónsson, J.Ö. (ritstj.). (2026). Investigating teaching quality through video capture: Equity and quality in Nordic classrooms. Springer. https://link.springer.com/book/10.1007/978-3-032-06893-4 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun