Brandarar á Alþingi og alvarlegar spurningar um undirbúning lagasetningar Benedikt S. Benediktsson skrifar 29. apríl 2026 10:31 Á meðan hlátur hljómaði í þingsal í fyrradag afgreiddi þingnefnd mál sem vekur alvarlegar spurningar um undirbúning lagasetningar. Brandari 1: Ýjað að nánum kynnum Í fyrradag var kátt á Alþingi þegar Inga Sæland tók til máls. Karl Gauti Hjaltason hafði spurt Ingu út í afstöðu hennar til kolefnisálaga, ETS, og virtist finna þeim ýmislegt til foráttu. Eins og vant er stóð ekki á svari Ingu sem sagði ekki skrítið að þau væru sammála þar sem þingmaðurinn hefði verið dálítið náin henni um tíma. Þvertók Inga fyrir að fara út í það nánar. Við svo búið ærðist þingheimur úr hlátri. Inga þakkaði fyrir fyrirspurnina, sagðist í góðum gír, vissi ekkert hvað hún ætlaði að segja en gerði að lokum góðlátlegt grín að ræðustíl Karls Gauta og uppskar enn frekari hlátrasköll. Léttur tónn – þyngra mál í bakgrunni. Brandari 2: Ýjað að nánum kynnum við stjórnarskránna Annar brandari féll á Alþingi í fyrradag sem minna fór fyrir. Hann birtist í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um lagafrumvarp sem hefur þann tilgang að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti. Nú kann að vera að brandarinn sé það sem er kallað áunnið bragð (e. aquired taste), eins og ólífur með ansjósum. Ábendingar um tvíverknað Við meðferð efnahags- og viðskiptanefndar bárust henni ábendingar um að frumvarpinu væri kveðið á um að lagður skyldi 11% virðisaukaskattur á eldsneyti þetta sumarið og að Samkeppniseftirlitið skyldi hafa eftirlit með því að sú skattprósenta yrði fyrir valinu en ekki einhver önnur. Bent var á að ríkisskattstjóri hefði þegar eftirlit með slíku og óþarft væri að bæta Samkeppniseftirlitinu við. Hátimbruð umfjöllun Viðbrögð meirihlutans voru m.a. að benda með hátimbruðum hætti á að í 75. gr. stjórnarskrárinnar sé kveðið á um vernd atvinnufrelsis sem megi takmarka með lögum. Metur meiri hlutinn það svo að slíkar takmarkanir þurfi að byggjast á skýrri eða ótvíræðri lagaheimild og að löggjafanum sé óheimilt að fela framkvæmdarvaldshöfum óhefta ákvörðun um þær. Þá sagði meiri hlutinn að löggjafinn þurfi að mæla fyrir um meginreglur þar sem fram komi takmörk og umfang þeirrar réttindaskerðingar sem talin er nauðsynleg. Barið í brestina Að þessu sögðu lagði meiri hlutinn til að í stað þess að um framkvæmd eftirlits með lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti skuli gilda tiltekin ákvæði samkeppnislaga skuli þau hin sömu ákvæði gilda um tímabundna lækkun á útsöluverði eldsneytis. Í ljósi tillögunnar segir meirihlutinn að Samkeppniseftirlitinu beri að afla gagna og upplýsinga frá söluaðilum um verðmyndun og forsendur sem liggja henni að baki og þar með sé tryggt að söluaðilum sé óheimilt að auka eigin álagningu á eldsneyti í því skyni að taka til sín þann ávinning sem af tímabundinni lækkun virðisaukaskatts hlýst. Áfram er gert ráð fyrir að söluaðilar eldsneytis leggi 11% virðisaukaskatt á eldsneyti þetta sumarið. Samkeppniseftirlitinu er ætlað að hafa eftirlit með því að sú lækkun eldsneytisverðs sem leiða mun af því að virðisaukaskattur lækkar tímabundið úr 24% í 11% endi í útsöluverði. Ef Samkeppniseftirlitið telur það ekki hafa gerst, þar sem söluaðilar hafi hækkað álagningu, á að beita þá stjórnvaldssektum. Hvergi er þess getið hverju álagning söluaðila má nema en þó á hún ekki að leiða til tapsrekstrar. Þetta er brandari sem þarf að útskýra Marga lögfræðingabrandara þarf að útskýra. Það er best að gera með því að setja fram þrjár spurningar, sem endurspegla hátimbraðar ábendingar meirihlutans, og bæta við ástæðu þess að spurt er: 1. Hefur löggjafinn ákveðið takmarkanir á atvinnufrelsi með skýrri eða ótvíræðri lagaheimild þegar hann segir ekki í lagatexta heldur í nefndaráliti að hann ætlist til þess að álagning breytist ekki á eldsneyti? Ég bara spyr þar sem samkvæmt orðanna hljóðan eiga söluaðilar eldsneytis að skila út í útsöluverð muninum á 24% og 11% virðisaukaskatti og tilteknar reglur samkeppnislaga að gilda þegar Samkeppniseftirlitið framkvæmir eftirlit með því að svo fari. Í lagatextanum verður álagning ekki nefnd frekari en nokkuð annað en lækkun skatthlutfalls og breyting á útsöluverði af þeim sökum. 2. Hefur löggjafinn ákveðið meginreglur þar sem fram koma takmörk og umfang þeirrar réttindaskerðingar sem söluaðilarnir eiga að sæta? Ég bara spyr þar sem samkvæmt umfjöllun í nefndaráliti sem verður ekki í lagatexta verða takmörkin og umfangið í formi eftirlits Samkeppniseftirlitsins með álagningu, beiting stjórnvaldssekta af þess hálfu og heimild atvinnuvegaráðherra til að stýra verðlagningu með reglugerð. 3. Hefur löggjafinn ákveðið að framselja til framkvæmdarvaldshafa óhefta ákvörðun um hver álagningin má vera? Ég bara spyr þar sem Samkeppniseftirlitið telst til handhafa framkvæmdarvalds og það virðist gert ráð fyrir að stofnunin ákveði án lögbundinna viðmiða hvað hún telur ásættanlegt þegar að álagningu kemur. Ég veit ekki með ykkur en ég dó! Aukabrandari: Ég sé gasljósið Síðasta sumar sendi konan mig í sérverslun að kaupa ljósaperu í útiljós. Unga sölukonan sem afgreiddi mig afsakaði sig þar sem perurnar í ljósið væru ekki lengur framleiddar með sama ljósstyrk og áður. Ég sagði: „Ekkert mál, ef konan mín gerir athugasemdir segi ég henni bara að hún sé að missa vitið.“ Sölukonan unga varð vægast sagt óhress með þetta svar. Nú óska ég þess heitast að bévítans peran springi ekki aftur fyrr en unga sölukonan hefur gleymt mér. Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Benedikt S. Benediktsson Mest lesið Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Ósýnileg stjórnarskrárákvæði Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæði-til hvers ? Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar