Blá útivist – sóknarfæri lýðheilsu Jón Pálsson skrifar 29. apríl 2026 00:00 Sjósókn hefur fylgt íslenskri menningu frá landnámi. Flest byggðarlög hafa mótast af aðgengi að sjó og þeim tækifærum, sem sjórinn og fiskimiðin hafa skapað. Enda þótt færri og færri hafi sjóinn og sjávarútveg að atvinnu er sjórinn enn bæði gullkista þjóðarbúsins fyrir tekjuöflun, tenging okkar við umheimin í gegnum flutninga á vörum og aðdráttarafl til útivistar um land allt. Þar er þó einn hængur á. Aðgengi að sjó er víða takmarkað, sér í lagi á höfuðborgarsvæðinu. Sjávarútivist bætir lýðheilsu Útivist í og við vatn getur dregið úr streitu, aukið hreyfingu og styrkt félagsleg tengsl. Sjósund, gufuböð, kajakróður, köfun, sjóbrettasport, róðraríþróttir, siglingar, eða bara ganga um fjöruna eru allt dæmi um starfsemi sem getur orðið hluti af daglegu lífi almennings – ef aðstöðuna er að finna og aðgengi að henni er bætt. Þannig getur blá útivist verið hluti af daglegu, heilsubætandi umhverfi fólks, ekki aðeins viðburður heldur lífsstíll. Aðgengi að sjó á að vera réttur – ekki forréttindi Ef höfuðborgarsvæðið á að standa undir nafni sem alvöru strandsamfélag þarf borgarbúum að gefast raunverulegur aðgangur að strandlengjunni. Þar liggja tækifærin til betri heilsu, öflugra samfélags og meiri virðisauka. Í dag eru einungis hlutar strandlengjunnar á höfuðborgarsvæðinu vel aðgengilegir til almennrar útivistar. Víða má bæta aðgengi fólks að sjónum, jafnvel með litlum tilkostnaði. Flotbryggjur og rennur fyrir sjósetningu smábáta, aðstöðu fyrir sjósund, fargufur, köfun og kajakróður, dorgveiði, sjóbrettasport, gönguleiðir og sameiginlega uppbyggingu milli sveitarfélaga. Sjávaraðgengi ætti að vera einn af grunninnviðum strandborgar í samfélagi, þar sem sjósókn er og hefur verið ein af grunnstoðum samfélagsins. Sjórinn sem íþrótta- og útivistarsvæði er nánast ótakmörkuð auðlind, aðeins ef aðgengi að honum er tryggt,. Samtaka átaks er þörf til að efla bláa útivist Að gera strandlengjuna frá Kollafirði til Hafnafjarðar betur aðgengilega til blárrar útivistar ætti að vera sameiginlegt verkefni sveitarfélaga, íþróttafélaga og annarra hagsmunaaðila. Þarna mætast mörk Reykjavíkurborgar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarness, Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Með samræmdri stefnu og fjárfestingu sveitarfélaganna getur á örfáum árum orðið til ómetanlegt útivistarsvæði sem tengir saman höfn, fjöru, strendur og gönguleiðir í eina samfellu. Siglingasamband Íslands, SÍL, sérsamband siglingafélaga innan Íþrótta – og Ólympíusambands Íslands hefur á að skipa yfir 2000 skráðum iðkendum í siglingaklúbbum, sem starfa um land allt. Þar af eru 4 klúbbar á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að íþrótta- og tómstundaráð sveitarfélaganna standa í samstarfi við klúbbana fyrir sumarnámskeiðum fyrir börn og unglinga í ýmsum þáttum siglinga. Sjósóknarþjóð á ekki að snúa baki við sjónum Við erum þjóð sem byggt hefur líf sitt og afkomu við sjóinn. Um land allt er frístundasjósókn aðgengileg og algeng, en á höfuðborgarsvæðinu, þar sem meirihluti landsmanna býr, er sjósókn á undanhaldi og tengsl íbúa við sjóinn ásamt aðgengi að honum er þverrandi. SÍL og siglingaklúbbar höfuðborgarsvæðisins vilja leggja sitt lóð á vogarskálarnar um að snúa þessari þróun við í samstarfi við fulltrúa sveitarfélagana og aðra haghafa. Sjórinn er hér. Strandlengjan er hér. Tökum ákvörðun um að gefa fólki betra aðgengi að þessari bláu náttúruperlu. Blá útivist getur orðið lýðheilsuátak höfuðborgarsvæðisins á næstu árum. Hún krefst ekki mikilla umsvifa en getur skilað ómetanlegum ávinningi. Nú er komið að stjórnvöldum að horfa til sjávar – og opna leiðirnar að þessari bláu auðlind sem bíður við ströndina. Höfundur hefur stundað frístundasjómennsku frá barnsaldri og er sjálfboðaliði í Siglingafélaginu Ými í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Halldór 12.09.2026 Halldór Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar