Erlent

Ógn á galakvöldverði og for­setinn fluttur á brott

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Robert F. Kennedy Jr. var meðal þeirra sem öryggissveitir fylgdu úr salnum.
Robert F. Kennedy Jr. var meðal þeirra sem öryggissveitir fylgdu úr salnum. AP/Tom Brenner

Donald Trump Bandaríkjaforseti, eiginkona hans Melania Trump, varaforsetinn JD Vance og ráðherrar voru fluttir í öruggt skjól þegar hættu varð vart á galakvöldverði fjölmiðla í Washington. Fregnir hafa borist af því að skothvellir hafi heyrst og að sögn yfirvalda hefur einn verið handtekinn.

Svo virðist sem til standi að setjast aftur að borðum en forsetahjónin voru flutt aftur í Hvíta húsið. Trump hyggst halda blaðamannafund innan skamms.

Ef marka má erlenda miðla var kvöldverðurinn rétt að hefjast þegar háir hvellir heyrðust. Liðsmenn lífvarðarsveitar Trump (e. Secret Service) þustu samstundis í gegnum salinn að forsetanum og eiginkonu hans og fylgdu þeim á brott. 

Aðrir gestir földu sig undir borðum og öskur og brothljóð heyrðust í salnum.

Samkvæmt New York Times var ekki öryggiseftirlit við inngang Hilton hótelsins þar sem viðburðurinn stendur yfir en gestir voru látnir gangast undir leit þegar þeir fóru inn í kvöldverðarsalinn.

Shawn McCreesh, blaðamaður New York Times, lýsir því að hafa verið á leið á salernið þegar skothvellir heyrðust í salnum sem var þar fyrir framan. Hann segir vopnaða öryggisverði hafa komið á móti honum og öskrað á hann að forða sér. Á bakvið verðina hafi fólk verið búið að hnipra sig upp við veggi, aðallega ljósmyndarar og veitingastarfsmenn.

Ráðherrar og fylgdarlið hafi í kjölfarið verið fluttir á brott.

Eins og fyrr segir hefur verið tilkynnt að kvöldverðurinn haldi áfram en greint hefur verið frá því að verulega hafi fækkað í salnum. Það kann þó að breytast þar sem miðlar hafa einnig sagt frá því að gestum hafi ekki verið leyft að yfirgefa hótelið þar sem tryggja þurfti varnarlínu umhverfis bygginguna.

Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, sætti banatilræði af hálfu John Hinckley Jr. fyrir utan saman hótel árið 1981.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×