Íbúar furða sig á horfnu listaverki Freyja Þórisdóttir skrifar 25. apríl 2026 11:12 Listaverkið eftir Guðjón var reist í Grafarvogi árið 2001 og var hluti af sýningu Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík, Strandlengjan, verkefni sem hófst árið 1998 og lauk á Listahátíð í Reykjavík árið 2000. Samsett mynd Listaverkið Sunnudagur frá 2000 eftir Guðjón Ketilsson hefur staðið í Grafarvogi í rúm tuttugu ár, eða gerði það öllu heldur. Verkið hefur að mestu leyti verið fjarlægt en á næstu vikum mega íbúar búast við því að sjá það endurbætt og í betra ásigkomulagi á sama stað og það var.
Stóllinn, skyrtan og skórnir eiga að sögn listamannsins Guðjóns Ketilsonar að vera eins konar sviðsetning á hugarástandi. Sunnudagur er kyrrstæður og því sóttist Guðjón við því að skapa verk sem vísaði í kyrrt ástand eða værð. Þetta er meðal þess sem kemur fram á vef Guðjóns. Verkið hefur hins vegar ekki staðið alveg kyrrt síðan sumarið 2024 en þá var það fjarlægt af stoðum sínum. Þá hafði það ryðgað alveg í gegn og því var það fært í viðgerð. Þetta kemur fram í samtali Vísis við Natalíu Druzin Halldórsdóttur, kynningar- og markaðsstjóra Listasafns Reykjavíkur. Árið 2024 var skyrtan horfin ásamt hluta af setunni en íbúar veltu margir fyrir sér hvað hefði skeð, hvort hluti verksins væri í viðgerð eða hvort unnin hefðu verið skemmdarverk á því.Facebook „Þetta var allt gert í góðu samráði við Guðjón og lagað eftir ströngum reglum, sama efni var notað við viðgerðirnar og verkið er alveg eins og það var upphaflega,“ segir Natalía. Hún greinir einnig frá því að verkinu verði stillt upp á ný mjög bráðlega og að henni þyki gaman að finna fyrir áhuga íbúa Grafarvogs og að sjá umræðuna sem hafi skapast sé glaðlegt. Þeim standi greinilega ekki á sama um að verkið hafi horfið. „Þessar viðgerðir tóku lengri tíma en áætlað var en það er gleðiefni að segja frá því að það rísi á ný núna á næstunni,“ bætir hún við. Listasafn Reykjavíkur heldur úti appi þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um öll útilistaverk í borginni en þau eru um tvö hundruð talsins. Þá er einnig hægt að finna hljóðleiðsagnir fyrir göngu- og hjólatúra í appinu.
Reykjavík Tímamót Styttur og útilistaverk Mest lesið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Frægustu mágar landsins Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Lífið samstarf Ocasio-Cortez á lausu Lífið Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Lífið samstarf Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira