Reykjavík getur gripið börn fyrr Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar 25. apríl 2026 09:03 Í Reykjavík eru börn sem þurfa hjálp, en fá hana ekki nógu snemma. Mörg börn eru að takast á við erfiðar aðstæður – veikindi í fjölskyldu, ofbeldi, fátækt, fordóma eða félagslegan þrýsting – sem getur haft mikil áhrif á líðan þeirra. Kerfin okkar eru þó að miklu leyti byggð upp þannig að börn fá fyrst og fremst aðstoð þegar vandi þeirra hefur náð ákveðnu alvarleikastigi. Til að komast að í þjónustu þarf oft tilvísun eða greiningu. Fyrir mörg börn og unglinga á það einfaldlega ekki við. Það er ekki eitthvað „að“ þessum krökkum, en þau eru samt að takast á við aðstæður sem valda kvíða, streitu, depurð eða einmanaleika. Það eru eðlileg viðbrögð við krefjandi aðstæðum. Í slíkum tilfellum þurfa þau ekki endilega sérhæfða meðferð heldur aðgengi að fullorðnum fagaðila sem getur hlustað, stutt og leiðbeint. Stoppum vandann áður en hann stækkar Hér skiptir lágþröskuldaþjónusta máli. Hún felst í því að börn geti fengið stuðning án þess að þurfa greiningu eða tilvísun og án þess að bíða mánuðum saman eftir viðtali. Við í Samfylkingunni viljum færa þessa þjónustu meira inn í skólana þar sem hún væri sýnileg og aðgengileg. Þar gætu krakkarnir leitað til fagaðila sem hefur tíma til að ræða við þau, hjálpa þeim að setja orð á líðan sína og vinna með bjargráð. Slík þjónusta getur einnig metið hvort þörf sé á frekari aðstoð og vísað áfram ef þarf. Stuðningur á réttum tíma skiptir sköpum, bæði fyrir líðan barnsins í núinu og framtíð þess. Þetta snýst um að mæta börnum þar sem þau eru stödd og vinna með líðanina áður en hún verður að alvarlegu þunglyndi, kvíðaröskun eða fíknivanda svo eitthvað sé nefnt. Vart þarf að nefna að fjárfesting í þjónustu sem er forvörn gegn svo alvarlegum vanda mun ávallt borga sig. Það þarf ákvörðun um að gera þetta öðruvísi – og það viljum við gera. Við munum forgangsraða því að byggja þjónustu sem grípur börn og unglinga fyrr af því börn eiga ekki að þurfa að vera orðin veik til að fá loksins hjálp. Höfundur er í 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Í Reykjavík eru börn sem þurfa hjálp, en fá hana ekki nógu snemma. Mörg börn eru að takast á við erfiðar aðstæður – veikindi í fjölskyldu, ofbeldi, fátækt, fordóma eða félagslegan þrýsting – sem getur haft mikil áhrif á líðan þeirra. Kerfin okkar eru þó að miklu leyti byggð upp þannig að börn fá fyrst og fremst aðstoð þegar vandi þeirra hefur náð ákveðnu alvarleikastigi. Til að komast að í þjónustu þarf oft tilvísun eða greiningu. Fyrir mörg börn og unglinga á það einfaldlega ekki við. Það er ekki eitthvað „að“ þessum krökkum, en þau eru samt að takast á við aðstæður sem valda kvíða, streitu, depurð eða einmanaleika. Það eru eðlileg viðbrögð við krefjandi aðstæðum. Í slíkum tilfellum þurfa þau ekki endilega sérhæfða meðferð heldur aðgengi að fullorðnum fagaðila sem getur hlustað, stutt og leiðbeint. Stoppum vandann áður en hann stækkar Hér skiptir lágþröskuldaþjónusta máli. Hún felst í því að börn geti fengið stuðning án þess að þurfa greiningu eða tilvísun og án þess að bíða mánuðum saman eftir viðtali. Við í Samfylkingunni viljum færa þessa þjónustu meira inn í skólana þar sem hún væri sýnileg og aðgengileg. Þar gætu krakkarnir leitað til fagaðila sem hefur tíma til að ræða við þau, hjálpa þeim að setja orð á líðan sína og vinna með bjargráð. Slík þjónusta getur einnig metið hvort þörf sé á frekari aðstoð og vísað áfram ef þarf. Stuðningur á réttum tíma skiptir sköpum, bæði fyrir líðan barnsins í núinu og framtíð þess. Þetta snýst um að mæta börnum þar sem þau eru stödd og vinna með líðanina áður en hún verður að alvarlegu þunglyndi, kvíðaröskun eða fíknivanda svo eitthvað sé nefnt. Vart þarf að nefna að fjárfesting í þjónustu sem er forvörn gegn svo alvarlegum vanda mun ávallt borga sig. Það þarf ákvörðun um að gera þetta öðruvísi – og það viljum við gera. Við munum forgangsraða því að byggja þjónustu sem grípur börn og unglinga fyrr af því börn eiga ekki að þurfa að vera orðin veik til að fá loksins hjálp. Höfundur er í 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar