Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Agnar Már Másson skrifar 23. apríl 2026 21:38 Hákon er sagður hafa virst utan við sig þegar hann lagði af stað upp á flugvöll. Samsett mynd/Facebook/Getty Hákon Þór Elmers, 53 ára faðir frá Íslandi, hvarf sporlaust í Ungverjalandi laugardagskvöldið 11. apríl, eftir að hafa stungið af á flugvelli í höfuðborginni Búdapest. Síðustu þrjá til fjóra mánuði hefur Hákon dvalið á hóteli í borginni en hann er sagður hafa virst ringlaður þegar síðast sást til hans.
Síðast sást til Hákonar um klukkan 20 að kvöldi laugardags 11. apríl þegar hann yfirgaf flugvöllinn í Búdapest og steig inn í strætisvagn, að sögn aðstandenda. „Þetta eru bara búið að vera svefnlausar nætur og mikill kvíði,“ segir Aron Freyr, tvítugur sonur Hákonar, í samtali við Vísi. Lögregla með málið til rannsóknar Aron útskýrir að faðir sinn hafi verið í Búdapest í Ungverjalandi síðustu þrjá til fjóra mánuði. Hann hafi svo ætlað að snúa heim til að heilsa upp á son sinn en einnig til að sinna ýmsum erindum á Íslandi. Frá flugvellinum í Búdapest. Mynd úr safni.Getty Hákon hafi þá keypt sér miða í flug með Wizz dagsett laugardaginn 11. apríl. Hann hafi farið upp á völl, með aðstoð kunningja síns, og svo hafi flugvallarstarfsfólk ætlað að hjálpa honum þegar hann var mættur upp á völl. En þá stakk hann flugvallarstarfsfólkið af, að sögn Arons Freys. Hákon hafi yfirgefið flugvöllinn og stigið upp í strætisvagn. Ekki hefur sést til hans síðan, svo vitað sé. Aron segir að sími föður síns hringi ekki út en að lögreglan á Íslandi, sem hefur málið til rannsóknar, hafi nú fartölvu Hákonar undir höndum og reyni að gá hvort hægt sé að finna síðustu GPS-skráningu í farsíma hans (svo sem með forritinu „Find my iPhone“). Aron segir að faðir sinn hafi undanfarna mánuði verið í ferðalagi um alla Evrópu, en ferðaáformin hafi komið flatt upp á fjölskylduna. Það væri mjög ólíkt honum. Síðustu símsamskipti sem þau hafi átt við hann hafi verið í gegnum FaceTime, þar þar sem hann hafi virst náfölur og afar ringlaður. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér. Starfsfólk farið að kannast við hann Vísir ræddi einnig við starfsmann hótelsins þar sem Hákon dvaldi. Hótelstarfsmaðurinn sagði starfsfólk hafa verulegar áhyggjur af Hákoni enda væri það farið að þekkja vel til hans þar sem hann hefði dvalið á hótelinu í rúman ársfjórðung. Hann hafi virst utan við sig þegar hann yfirgaf hótelið. Starfsfólk á hótelinu þar sem Hákon dvaldi hefur vakið athygli á mannshvarfinu í Búdapest. Facebook Uppfært: Í fyrri útgáfu kom fram að hann hefði síðast sést 12. apríl. Hið hið rétta er 11. apríl.
Ungverjaland Íslendingar erlendis Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Sjá meira