Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Kjartan Kjartansson skrifar 22. apríl 2026 14:11 Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fær tæplega fjögur hundruð þúsund krónum minna á mánuði í laun en Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, miðað við tölur Eflingar um heildarlaun formannsins. Vísir/Vilhelm Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er með rúma eina og hálfa milljón króna í heildarlaun fyrir störf hennar hjá stéttarfélaginu og sem annar varaforseti ASÍ. Hún hefur deilt hart á kjör starfssystur hennar hjá VR að undanförnu.
Launakjör Höllu Gunnarsdóttir, formanns VR, hafa verið til umræðu eftir að stjórn félagsins samþykkti að hækka þau um tólf prósent í síðustu viku. Sólveig Anna hélt því fram að VR léti ASÍ niðurgreiða laun formannsins þar sem að þóknun sem Halla fær sem varaforseti sambandsins eru talin hluti af heildarlaunum hennar hjá VR. Þau nema nú rúmum 1,9 milljónum króna. Í skriflegu svari Eflingar við fyrirspurn Vísis kemur fram að Sólveig Anna fái 1.279.975 krónur á mánuði í laun fyrir formennsku sína. Þá fái hún 243.900 krónur mánaðarlega fyrir setu sem annar varaforseti ASÍ, jafnmikið og Halla. Samtals fær Sólveig Anna því 1.523.875 krónur í heildarlaun á mánuði vegna starfa sem hafa tengingu við Eflingu. Hún situr í stjórn Bjargs íbúðafélags en Efling segir ekki greitt fyrir þá stjórnarsetu. „Hún sinnir ekki öðrum verkefnum eða störfum sem tengjast Eflingu eða verkalýðshreyfingunni,“ segir í svari Eflingar. Sólveig Anna sakaði Höllu um að vera „ómerkilegur popúlisti“ sem hefði tekið sér stöðu með hálauna- og forréttindafólki í aðsendri grein á Vísi í morgun. Greinin var viðbragð við samfélagsmiðlafærslu Höllu þar sem hún líkti Sólveigu Önnu við pólitískan eltihrelli vegna ítrekaðrar gagnrýni hennar á sig.
Stéttarfélög Kjaramál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira