Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Þórarinn Þórarinsson skrifar 22. apríl 2026 14:10 Teitur Árni byrjaði að flytja inn bíla þegar hann var í menntaskóla og hefur nú, nítján ára gamall, opnað Bílskúrinn Bílasölu og hlýtur, þar til annað kemur í ljós, að mega teljast yngsti bílasali landsins. Vísir/Vilhelm „Ég er enn að fá hingað fullt af fólki sem ætlar að fá sér ís,“ segir Teitur Árni Sigurðarson, nítján ára athafnamaður sem var að opna bílasölu á Seltjarnarnesinu þar sem ísbúðin Huppa var áður. „
Það er mjög fyndið hvað það koma enn margir hingað að leita að ís þannig að ég þarf eiginlega bara að vera með frostpinna hérna á bak við, þannig að fólk fari ánægt heim,“ segir Teitur Árni sem í síðustu viku opnaði bílasöluna Bílskúrinn við Austurströnd á Seltjarnarnesi.„Ég veit eiginlega ekki hvernig á að lýsa þessu en þetta small einhvern veginn bara allt bara svona fullkomlega saman,“ segir Teitur Árni sem var á síðasta ári sínu í menntaskóla þegar hann fór að fikra sig hægt og hljótt inn í bransann með innflutningi bíla frá Evrópu. Svalur gaur í menntó „Þá var ég mest í þessu bara fyrir sjálfan mig og það var gaman að vera alltaf á nýjum bílum sem ég seldi síðan alla með fínum hagnaði. Maður tók bara smá áhættu og fór svo bara á fullt í þetta og þannig varð þetta eiginlega bara vinnan mín.“Á meðan Teitur Árni var bílasali og innflytjandi samhliða skólanum skipti hann jafn ört um bíla og þeir sem hann var að nota seldust. „Sumir seldust fljótt, aðrir ekki, og ætli ég hafi ekki verið á nýjum bíl á svona þriggja mánaða fresti,“ segir hann og getur ekki neitað því að með því að birtast reglulega á nýjum kagga gæti hann hafa talist frekar svalur gaur í menntó. „Já, það mætti segja það.“ Yngstur á Íslandi Bílasöluævintýri menntaskólanemans gekk það vel að Teitur Árni byrjaði í hálfu starfi hjá bílasölunni Draumabílum. „Síðan langaði mig bara einhvern veginn að gera þetta sjálfur og ákvað að opna mína eigin bílasölu. Þá fór ég að leita að staðsetningu og svo púslaðist þetta bara einhvern veginn svona saman hægt og rólega.“ Teitur Árni renndi hýru auga til Austurstrandarinnar þaðan sem ísbúð Huppu flutti nýlega, um rétt rúman kílómetra, úr póstnúmeri 170 yfir á Ægisíðu í 107.„Ég þurfti pláss og hringdi í Orkuna sem á húsnæðið og fékk að vita að Huppa væri að færa sig og plássið væri laust í febrúar og opnaði svo bara í síðustu viku,“ segir Teitur Árni sem ætla má að sé yngsti bílasali landsins. „Ég veit um einn sem er ári eldri en ég hef ekki heyrt um neinn sem er yngri.“ Góð markaðsstaðsetning Þótt ýmis rekstur, meðal annars blómaverslun og ísbúð Huppu, hafi verið stundaður á blettinum við Austurströnd í gegnum áratugina tengja flest hann líklega við bensínsölu.Þar reistu Olís og Shell fyrstu bensínstöðina snemma á níunda áratugnum og ráku hana sameiginlega þar til Orkan tók við dælunum og þannig má segja að með bílatengingunni haldi Teitur Árni ákveðinni sögulegri samfellu.„Fólkið á Nesinu er búið að vera dálítið forvitið um hvað væri að koma hérna,“ segir Teitur Árni og því ljóst að staðsetningin hefur í sjálfri sér umtalsvert markaðsgildi. Bæði þar sem fólk leggur enn leið sína þangað í leit að Huppuís auk nokkuð almenns áhuga Seltirninga á framtíð viðskipta við Austurströnd 7. Vinsælir pallbílar Teitur Árni byggir rekstur Bílskúrsins á grunninum sem hann lagði þegar hann var í menntaskóla og leggur höfuðáherslu á innflutning bifreiða frá Evrópu og Bandaríkjunum. Þar fyrir utan tekur hann, eins og vera ber, við notuðum bílum til endursölu.Þvert á það sem ef til vill mætti ætla í ljósi rekistefnu Bandaríkjanna í tollamálum segir Teitur Árni innflutninginn þaðan ganga smurt. „Ég hef allavega ekki fundið fyrir neinu. Þetta er ekkert flókið og mér finnst eiginlega bara auðveldara að flytja inn frá Bandaríkjunum en Evrópu.“ Austurströnd 7 á Seltjarnarnesi er heppilegur staður fyrir Bílskúrinn hans Teits Árna en fyrir utan heilbrigða forvitni um nærumhverfi sitt leggur fólk enn leið sína þangað í ísbíltúrum.Vísir/Vilhelm Teitur Árni segist flytja mest inn af rafdrifnum pallbílum enda vinsældir þeirra miklar um þessar mundir og þá fær hann einmitt frá Bandaríkjunum. „Annars get ég svo sem alveg flutt inn hvað sem er; díesel og gamla kagga en rafmagnsbílarnir eru vinsælastir núna.“ Harður bransi Teitur Árni segir samkeppnina í bílasölunni vissulega harða enda margir um hituna. „Já, það er hörku samkeppni. Ég veit ekki hvað bílasölurnar eru margar en þær eru örugglega eitthvað í kringum 30 á landinu en það er allavegana engin samkeppni á Nesinu.“Aðspurður segist hann aldrei hafa verið neinn sérstakur bíladellukall og hann hafi miklu frekar farið út í þennan bransa einfaldlega vegna þess að hann er sölumaður í eðli sínu.„Mér finnst bara gaman að selja, finnst skemmtilegt að kynnast nýju fólki og bara almennt að tala við fólk,“ segir Teitur Árni sem, þrátt fyrir þennan eiginleika, hefur enn ekki náð því að taka á móti manneskju í leit að ís og senda hana heim á nýjum bíl. Bíllausi bílasalinn Bílasalinn ungi stendur í ströngu á fleiri vígstöðvum því hann er einnig ungur faðir. „Ég er með lítinn tíu mánaða strák heima þannig að maður reynir sitt besta og að vera eins mikið og maður getur á báðum stöðum. Þótt maður sé ungur þá þarf maður ekkert að vera að missa vitið yfir því að vera ekki að djamma allar helgar eða vera einhver aumingi.“Þú hefur átt frekar marga bíla, kannski frekar miðað við aldur en fyrri störf. Hvernig bíl ertu á núna?„Heyrðu, ég á engan bíl eins og er. Ég er bara á lánsbíl frá mömmu,“ segir yngsti bílasali landsins sem situr einn að markaðnum á Seltjarnarnesi.
Bílar Seltjarnarnes Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira