Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Atli Ísleifsson skrifar 22. apríl 2026 07:07 Hiti verður sex til sextán stig yfir daginn. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir að yfirleitt verði fremur hæg vestlæg eða breytileg átt í dag, en suðvestan átta til fimmtán metrar á sekúndu norðvestantil. Það verður svo hægari vindur í kvöld.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði víða bjartviðri, en skýjað að mestu vestantil á landinu og líkur á þokulofti. Hiti verður sex til sextán stig yfir daginn, en nálægt frostmarki í nótt, einkum inn til landsins. Tvær hæðamiðjur taka að myndast suður af landinu í dag – ein í suðvestri og önnur í suðaustri. „Á fimmtudag (sumardaginn fyrsta) verður hæðasvæðið heldur minna um sig, með eina miðju suðaustur af landi og því virðist ekkert lát vera á fremur hægum vestlægum eða breytilegum áttum næstu daga.Á laugardag myndast hæðahryggur yfir Færeyjum og veldur suðaustlægum eða breytilegum áttum, en þá nálgast okkur líka lægðadrag frá víðáttumiklu lágþrýstisvæði við Nýfundnaland sem ber með sér rakt loft og fer þá að rigna með kvöldinu.Lægðasvæðið verður að þokast austur yfir Atlandshafið langt inn í næstu viku og því er útlit fyrir vætusamt veður, en þó milt og fremur rólegt, meðan á því ferðalagi stendur,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti): Vestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en strekkingur norðvestanlands síðdegis. Skýjað að mestu vestan- og sunnanlands, annars bjartviðri. Hiti 5 til 14 stig yfir daginn. Á föstudag: Norðan og norðaustan 3-8 m/s. Skýjað norðan- og síðar austanlands og stöku skúrir með ströndinni, en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti 4 til 13 stig, hlýjast sunnanlands. Á laugardag: Suðlæg átt, 3-10 m/s. Dálítil súld með köflum sunnan- og vestantil en annars skýjað með köflum. Bætir í úrkomu með kvöldinu. Hiti 4 til 12 stig að deginum, hlýjast á Vesturlandi. Á sunnudag og mánudag: Sunnan og suðaustan 8-15 m/s og rigning sunnan- og vestanlands en yfirleitt þurrt norðaustanlands. Hiti 8 til 13 stig. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðlæga átt og rigningu sunnan- og vestanlands með heldur hlýrra veðri.
Veður Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Sjá meira