„Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla Jóhann Ingi Óskarsson skrifar 22. apríl 2026 09:17 Meirihluti bæjarstjórnar Vestmannaeyja hefur árum saman lýst yfir eigin ágæti í hagsmunagæslu. Af einhverri ástæðu hefur minnihlutinn tekið undir. Raunveruleikinn segir aðra sögu. Þá vaknar einföld spurning: Hvaða hagsmuni er í raun verið að verja? Innantómt hjal Myndir og yfirlýsingar um fundi með ráðherrum og „árangur“ í samgöngumálum eru ekkert annað en innantómt hjal. Raunveruleikinn er annar. Öll stór mál eru í óreiðu. Viðbrögð eru óáreiðanleg og virðast frekar ráðast af þrýstingi bæjarbúa en markvissri stefnu. Landeyjahöfn: Ekkert gerst Ástand Landeyjahafnar er sérstaklega alvarlegt. Þar hefur skort festu og eftirfylgni gagnvart ríkinu þegar tækifæri gafst til úrbóta. Aðaláhersla virðist vera á gagnrýni og leit að einhverjum til að kenna um. Engar kröfur. Engar lausnir. Engin niðurstaða. Engin framtíðasýn. Bara sama kveinið ár eftir ár. Landeyjahöfn er þjóðvegur okkar Eyjamanna. Enginn myndi sætta sig við að Miklabraut væri mokuð til hálfs og svo hætt ef fjármagn hefði verið vanáætlað. Það yrði ekki liðið. Einmitt þannig er staðan í Landeyjahöfn þegar dýpkun er ekki sinnt af fullri alvöru. Herjólfur: Ekkert gerst Herjólfur hefur bilað án þess að viðunandi varalausn sé til staðar. Gripið hefur verið til bráðabirgðalausna sem hafa áhrif langt út fyrir Eyjar. Þetta er ekki langtímalausn. Þetta er plástur. Þetta eru smáskammta lækningar. Gullið tækifæri til að selja gamla Herjólf og kaupa varaskip var látið renna úr greipum vegna aðgerðaleysis. Flugið: Ekkert gerst Flugsamgöngur hafa verið í óvissu árum saman. Í stað þess að byggja upp fyrirsjáanlegt og áreiðanlegt kerfi er brugðist við eftir á, oft með auknum kostnaði fyrir ríkið og óþarfa óvissu fyrir íbúa. Þetta er ekki skilvirk stjórnsýsla heldur viðbragðsstjórnun. Stórskipahöfn: Lítið sem ekkert gerst Þá blasir við annað stórt hagsmunamál sem hefur setið á hakanum uppbygging stórskipahafnar í Eyjum. Slík framkvæmd er lykilatriði fyrir framtíð atvinnulífs og samkeppnishæfni svæðisins. En til að hún verði að veruleika þarf markvissan undirbúning og skýra kröfugerð gagnvart ríkinu. Það gerist ekki af sjálfu sér. Hvað hefur gerst í þessu máli? Hjúkrunarheimili: Ekkert gerst Staða hjúkrunarheimilis í Eyjum er einnig áhyggjuefni. Í því eins og öðru hefur núverandi bæjarstjórn vísað ábyrgðinni frá sér með þeim rökum að ríkið eigi að sjá um slíka uppbyggingu. Það er einföldun sem stenst ekki. Þetta er afsökun fyrir aðgerðarleysi. Staðreyndin er sú að til að fá fjármagn frá ríkinu þarf sveitarfélagið sjálft að hefja undirbúning. Tryggja þarf lóð, vinna að hönnun og setja fram raunhæfa framkvæmdaráætlun. Án þess gerist einfaldlega ekkert. Að bíða eftir ríkinu er ekki hagsmunagæsla. Það er aðgerðaleysi. Það þarf nýtt fólk Það sem vantar er skýr stefna, markvissar kröfur og raunveruleg eftirfylgni. Það vantar nýtt fólk. Fólk sem leggur fram lausnir. Fólk sem berst. Fólk sem þorir. Það dugar ekki að benda á vandann. Það þarf að leggja fram lausnir og krefjast þess að þeim sé fylgt eftir. Hagsmunagæslan hefur brugðist Niðurstaða aðgerðaleysis er sú að mörg af stærstu hagsmunamálum Vestmannaeyja hafa safnast upp. Verkefni sem hefðu átt að vinnast markvisst yfir lengri tíma standa nú öll eftir á sama stað. Því er staðan orðin sú að erfitt er að ætlast til þess að ríkið leysi allt í einu og greiði tugi milljarða í einu átaki einfaldlega vegna þess að hagsmunagæslan hefur ekki verið nægileg. Hún hefur brugðist Miðflokkurinn er klár í verkefnið Nú tekur við ný bæjarstjórn. Fyrir Miðflokkinn er það skýrt að þessi mál þurfa að komast í farveg án frekari tafar með undirbúningi, skýrum kröfum og raunverulegri eftirfylgni. Það er verkefnið fram undan. Hagsmunagæsla snýst ekki um orð. Hún snýst ekki um myndir á Facebook. Hún snýst um lausnir. „Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla. Höfundur er frambjóðandi Miðflokksins í Vestmannaeyjum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vestmannaeyjar Miðflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar