Setjum lakk á litlaputta og segjum um leið ÉG LOFA Hallgrímur Helgason skrifar 21. apríl 2026 12:16 Áratugum saman höfum við byggt upp samfélagið okkar, breytt því og bætt. Við höfum lýst upp horn þess og afkima, laðað fólk út úr þögninni, leyft það sem bannað var, talað um það sem þagað var um og tekið á tabúum. Duldar hliðar mannlífsins hafa fengið pláss og rödd, minnihlutar hafa fengið meirihlutasamþykki og falin mál hafa fundin verið. Árangurinn er sýnilegur. Fólki líður almennt betur í dag en á dögum þöggunar, leyndarhyggju, útskúfunar og eineltis. Fólk hefur farið í áfengismeðferð og allskonar aðrar meðferðir, fundið leið til að ræða sín skakkaföll, viðrað sínar áfallasögur, fundið sitt kynfrelsi, fengið að vera það sjálft, á meðan aðrir hafa af hugrekki vísað samfélaginu á rústir sinnar æsku. Og eftir á skiljum við öll aðeins betur hversvegna þessi fór út í neyslu en hinn út í raðskilnaði, sá þriðji í hundana. Það er alltaf einhver skýring. Og kannski er ástæðan fyrir okkar eigin krumpum sú að við þögðum um versta áfallið okkar í 30 ár? Þögnin lagar ekkert. Við höfum fengið málið. Þess vegna er nýja Ísland ólíkt gamla Íslandi. Við höfum gengið til góðs. Hugsið ykkur allar þessar göngur, Reykjavík Pride, Druslugönguna, Kvennafrídaginn, allar litlu byltingarnar, alla samstöðufundina, allar erfiðu skringileiðirnar út úr skápnum, fram í dagsljósið, sem samkynhneigð, sem transmanneskjur, sem þolendur, sem fíklar, sem röskunartilfelli af hinu og þessu taginu, með glæný persónufornöfn af því að tungumálið rúmaði ekki það sem þagað var um í aldir, í stuttu máli allt þetta sem harðneskjufólkið kallar vók og vill ekki sjá, vill vinda ofan af og ýta afturá bak, niður í gömlu holuna, þögn og myrkur. Á móti segjum við þá: Þið eruð nú meira djókið, upp með vókið! Á hverju sumri er haldin Hinsegin hátíð í Hrísey. Foreldrar nokkurra barna sem komu snemma út úr skápnum tóku sig til og blésu til hátíðar. Hengdu upp fána, hituðu grillið, skipulögðu göngu og ball. Allt til að styrkja sitt fólk, til að sýna og sanna að litla góða samfélagið í eyjunni stendur með sínum krökkum, hvað sem á dynur annarstaðar. Senurnar sem þessi hátíð hefur gefið af sér lifa lengi í minninu. Regnbogafánar við hún í hverjum garði og hundrað manns með húfur og vettlinga að berjast gegn norðanslagveðri, á traktorsvögnum og gangandi, með litríka fánann á lofti, gegn fordómum og fávisku. Mannréttindabaráttan holdi klædd! Umræða síðustu daga sýnir okkur svo að aldrei má sofna á verðinum. Alltaf er verk að vinna. Samtökin sem Vigdís forseti skírði Barnaheill, en heitir með flestum þjóðum “Save the Children”, fara nú enn og aftur fram með ÉG LOFA herferðina sína, sem stendur yfir 20.-29. apríl. Hún snýst um að auka meðvitund okkar um kynferðisofbeldi gagnvart börnum sem enn er of algengt í okkar samfélagi. Við skorum á sjálf okkur sem og alla fullorðna að bregðast ekki börnum á örlagastundu. Við verðum að hafa augun opin, vera á varðbergi, tilbúin til að hlusta, trúa og bregðast við. Fyrr í vetur stóðu Barnaheill fyrir ungmennaþingum vítt um landið þar sem unglingar á hverjum stað mættu til að ræða það sem á þeim brennur í einkalífinu. Ekki stóð á viðbrögðunum, krakkarnir hikuðu ekki við að tjá sig um kynferðisofbeldi í nánum samböndum, sem virðist því miður vera of algengt, eða neikvæð áhrif áhrifavalda netmiðlanna sem vilja henda samfélaginu aftur um hundrað ár þar sem stelpurnar eiga að sætta sig við að strákarnir ráði og gerast fúsmæður eins og langömmur þeirra á meðan drengirnir fá að sprella á sínum sprella í gauragenginu. ÉG LOFA herferðinni lýkur á málþingi 29. apríl þar sem niðurstöður ungmennaþinganna verða kynntar og ræddar nánar. Börnin eru okkar viðkvæmustu verur. Hin minnsta mengun á sakleysi þeirra getur varpað skugga á heilt líf. Afleiðingarnar vara langt inn í fullorðinsárin, jafnvel inn á hjúkrunarheimilin og smita frá sér inn í hjónabönd og foreldrahlutverk. Aðeins nokkrum vikum fyrir andlát sitt var 92 ára gömul móðir okkar enn að tala um atvik í hlöðu á sveitabæ í Eyjafirði þegar hún var tíu ára gömul en bóndinn fertugur. Það líður vart sá mánuður að maður kynnist ekki einhverjum sem á erfiða sögu úr æsku, eitt lítið tilvik sem enn situr fast, strokur sem runnu of langt, ættingja sem brást, og enn alvarlegri tilvik þar sem sálir voru svívirtar. Hvað getum við gert annað en okkar besta, til þess að uppræta þetta hræðilega mein í samfélagi okkar? ÉG LOFA herferðin stendur út þennan mánuð. Við hvetjum fólk til að taka þátt með því að naglalakka litla putta og krækja honum við annan sem við þekkjum og líka hefur verið naglalakkaður og birtum svo myndina þar sem við getum, með loforði um að auka meðvitund um kynferðisofbeldi gagnvart börnum, undir slagorðinu ÉG LOFA. ÉG LOFA að líta ekki undan, ÉG LOFA að trúa, ÉG LOFA að tilkynna um grun um ofbeldi, skipta mér af óeðlilegum samskiptum fullorðins og barns, fylgjast með rauðu ljósunum, bregðast við og veita stuðning, fræða barnið mitt um hætturnar á netinu. Er unglingsstúlkan okkar að fá sendar typpamyndir frá eldri drengjum? Eru unglingsstrákarnir okkar að fá sendar typpamyndir frá drukknum mönnum í skápnum úti í bæ? Er kærasti dóttur okkar að heimta af henni það sama og hann sá á klámnetinu? Er börnunum okkar hótað með birtingu stolinna mynda eða annarskonar neteinelti? Treystum við hverjum sem er fyrir einkastund með barninu okkar? Hættum að gera hætturnar að hættulegu umræðuefni. Lofum okkur því. Höfundur er myndlistarmaður og rithöfundur og situr í stjórn Barnaheilla Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hallgrímur Helgason Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milli gjörða og gilda býr vonin. Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun