Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. apríl 2026 11:30 Oddgeir Einarsson, hæstaréttarlögmaður er verjandi Helga Bjarts. Vísir/Vilhelm Umfjöllun fjölmiðla um mál Helga Bjarts Þorvaldssonar sem dæmdur var fyrir kynferðislega áreitni gegn dreng í Hafnarfirði hefur vægast sagt verið villandi að sögn verjanda Helga. Hann segist sjá sig knúinn til að stíga fram og benda á nokkrar staðreyndir í málinu vegna þess sem hann segir vera rangfærslur foreldra brotaþola í viðtölum.
Dómur féll í málinu í síðustu viku. Fjölskipaður dómur Héraðsdóms Reykjaness taldi ekki unnt að slá því föstu að Helgi Bjartur Þorvarðarson hefði gerst sekur um háttsemi sem flokka megi sem önnur kynferðismök en samræði, þegar hann braust inn til tíu ára drengs í Hafnarfirði og lagðist upp í rúm til hans. Hann var sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni í stað nauðgunar og var dæmdur til 12 mánaða fangelsisvistar, þar af eru níu mánuðir skilorðsbundnir. Foreldrar barnsins sögðu í viðtali við Ríkisútvarpið í kjölfarið að þeir teldu dóminn vera áfall. Réttarkerfið hefði brugðist og ekki tryggt öryggi barns þeirra. Þau túlki dóminn þannig að barni þeirra sé ekki trúað. Horfið á brott um leið og hann hafi áttað sig á að um barn var að ræða Í yfirlýsingu til Vísis segir Oddgeir Einarsson hæstaréttarlögmaður og verjandi að dómurinn hafi verið birtur almenningi og niðurstaðan sú að skjólstæðingur hans hafi verið sýknaður af öllum alvarlegustu ákæruatriðunum og sleppt úr gæsluvarðhaldi að dómnum uppkveðnum. „Skjólstæðingur minn er fjögurra barna faðir á fimmtugsaldri sem aldrei áður hefur verið grunaður um að hafa kynferðislegan áhuga á börnum. Hverjum sem les þennan dóm má vera ljóst að þrátt fyrir sakfellingu um kynferðislega áreitni er einnig um þann möguleika að ræða að maður hafi drukkið sig í óminnisástand og endað á heimili fyrrum samstarfskonu, sem hann hafði verið í samskiptum við fyrr um nóttina, tekið í aftanverðan buxnastreng manneskju sem lá í rúmi og horfið á brott um leið og hann hafi áttað sig á að um barn var að ræða. Þrátt fyrir að öll atburðarrás kvöldsins, sem og frásögn brotaþola, geti stutt þá mögulegu atburðarrás hafa fjölmiðlar ekki greint frá þeim staðreyndum málsins.“ Umfjöllun hafi verið villandi Lögmaðurinn segir í yfirlýsingunni að á þeim átta mánuðum sem liðnir séu frá því að málið hafi komið upp hafi foreldrar brotaþola margítrekað farið í viðtöl í fjölmiðlum og fjallað ítarlega um málið. Meðal annars látið fjölmiðlum té valin gögn úr viðkvæmu sakamáli. „Hefur umfjöllun sú sem birtist í fjölmiðlum verið vægast sagt villandi. Hefur skjólstæðingur minn ekki viljað tjá sig um málið á opinberum vettvangi fyrir utan eina almenna yfirlýsingu til að undirstrika að það væri fleira í málinu en komið hefði fram og að dómstólar myndu taka afstöðu til þess. Hafði skjólstæðingur minn ekki í hyggju að fjalla frekar um málið.“ Hann segir að hins vegar hafi enn og aftur birst rangfærslur í viðtali við foreldra brotaþola í kvöldfréttatíma RÚV þann 16. apríl. „Þar sem fullyrt að skjólstæðingur minn hefði gert hluti sem sérstaklega er tekið fram í dómnum að hann sé sýknaður af eins og að káfa á kynfærum barns. Af þessum sökum finnst mér ég knúinn sem verjandi skjólstæðings míns að stíga fram og benda á nokkrar staðreyndir í málinu sem unnt er að sannreyna með því að lesa dóminn.“ Lífssýni af höndum en ekki sæði Hann segir að í fyrsta lagi liggi fyrir að eina DNA úr skjólstæðingi sínum sem hafi fundist á vettvangi hafi verið á aftanverðum buxnastreng brotaþola. Hann segir rétt að taka fram að þrátt fyrir að í opinberri umfjöllun um málið hafi verið talað um lífssýni úr ákærða í buxum brotaþola þá hafi ekki verið um að ræða sæði heldur lífssýni (DNA) sem virðist hafa komið af höndum skjólstæðings hans eftir að hann hafi gripið í buxnastrenginn. „Allar fullyrðingar um að skjólstæðingur minn hafi gert eitthvað meira en að taka í buxnastrenginn og sleppa honum síðan þurfa að byggjast á öðrum sönnunargögnum. Í þessu máli er þar ekki við annað að styðjast en framburð brotaþola. Eftirfarandi eru beinar tilvitnanir úr dómi héraðsdóms sem fjalla einmitt um þann framburð: „Í báðum skýrslum lýsti brotaþoli því hins vegar með nokkuð líkum hætti að ákærði hafi komið við líkama brotaþola og reynt að draga náttbuxur hans niður. Brotaþoli hafi þá vaknað, ákærði séð að hann var barn og farið í kjölfarið.“ „Hann [skjólstæðingur minn] hafi síðan sagt: ,,ó, afsakið“ verið að ,,fyrirgefa sig“ og síðan labbað út og talað eins og hann væri blindfullur eða eitthvað.“ „Brotaþolinefndi óljóst ífyrri skýrslu sinniað maðurinn hafihaldið að brotaþoliværi móðir brotaþola en í seinni skýrslunni tók hann það skýrt fram.“ „Í seinni skýrslunni lýsti brotaþoliþví svo aðákærði hafi ætlaðað fara uppí rúm tilmömmu brotaþola en farið til brotaþola og reynt að taka buxur hans niður sem hafi vaknað við það.“ „Í fyrri skýrslu sinni sagði brotaþoli að maðurinn hefði „reynt að ríða mér“ en nánar aðspurður um hvað það fæli í sér lýsti hann því svo að maðurinn hefði verið að „setja typpið á mig og í mig og þú veist gera bara skrítna hluti við mig“. Inntur eftir því hvaða skrítnu hluti ákærði hafi gert svaraði brotaþoli „bara fullt þú veist setja typpið í munninn á mér og eitthvað“ en er hann var beðinn um nánari skýringar á því hvort typpið hefði farið í munninn neitaði hann því en sagði að „það er hægt að gera það þannig þú veist fólk gerir það. „Brotaþoligaf tvær skýrslurfyrir dómi íBarnahúsi við rannsóknmálsins. Í fyrri skýrslunni, skömmueftir atvikið sem ákærter vegna, lýstibrotaþoli því m.a.að hann hafi séðeitthvað hvítt komaúr typpi mannsins,sem hafi fariðá rúm brotaþola,en maðurinn hafi síðansett það ábak og rassbrotaþola. Yfirdýna og sængurverúr rúmi brotaþola var tekið til rannsóknar en á þeim hlutum fannst ekki sæði og það fannst ekki heldur á náttfötum brotaþola né á honum sjálfum. Brotaþoli lýsti þessu þrátt fyrir að hann hafi sagt að það hafi verið mjög dimmt í herberginu og að hann hafi snúið baki í ákærða.“ Fréttin verður uppfærð.
Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Fleiri fréttir Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sjá meira