Þjónustumiðstöð 60+ í Hveragerði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Anna Jórunn Stefánsdóttir skrifa 20. apríl 2026 08:31 Umbætur og uppbygging í málefnum eldri borgara í Hveragerði Hveragerðisbær hefur löngum verið þekktur fyrir gæðin sem felast í því að eyða hér sínum efri árum. Öflug og metnaðarfull öldrunarþjónusta er eitt af einkennum bæjarins, sem við erum einkar stolt af. Það er markmið Okkar Hveragerðis að auka enn frekar gæði efri áranna í Hveragerði og á kjörtímabilinu hefur verið unnið markvisst að því að bæta umgjörð og þjónustu fyrir eldri íbúa bæjarins. Hveragerðisbær tekur m.a. þátt í þróunarverkefninu Gott að eldast með það að markmiði að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk ásamt því að mótuð hefur verið metnaðarfull stefna í málefnum eldri borgara í Hveragerði þar sem m.a. er sett fram það markmið að fjölga húsnæðiskostum og koma upp þjónustumiðstöð fyrir íbúa 60 ára og eldri. Fjölgun húsnæðiskosta og þjónustumiðstöð fyrir 60+ Í viðræðum Hveragerðisbæjar á kjörtímabilinu vegna uppbyggingarverkefna innan bæjarfélagsins hefur þessum sjónarmiðum verið haldið statt og stöðugt á lofti, og ýmsir möguleikar skoðaðir. Þar á meðal má nefna uppbyggingu á reit, í nálægð við alla helstu þjónustu, sem er nú á lokastigum í deiliskipulagsvinnu, þar sem koma á upp gæðaríkri byggð í nálægð við náttúruna fyrir eldri aldurshópa. Einnig hefur á kjörtímabilinu komið í sölu fyrsti áfangi íbúða í nýju hverfi í Lindarbrún með þjónustusamningum við Heilsustofnun NLFÍ. Einnig má nefna að í byggingu er glæsileg ný 18 rúma viðbygging við hjúkrunarheimilið Ás ásamt endurbótum á eldri hjúkrunarrýmum og breytingu tvíbýla yfir í einbýli. Bæjarstjórn hefur átt í góðu samtali við Félag eldri borgara í Hveragerði um uppbyggingu þjónustumiðstöðvar fyrir 60+ og kom sl. vetur á fót undirbúningshóp vegna þessa þar sem sæti eiga fulltrúar eldri borgara, kjörnir fulltrúar og starfsmenn bæjarins. Hópurinn hefur nú skilað skýrslu til bæjarstjórnar með forsendum fyrir þjónustukjarna, tillögum að staðarvali auk þarfagreiningar á starfsemi hans og hlutverki. Það er áberandi kraftur í starfi eldri borgara í Hveragerði og afrakstur vinnu starfshópsins ber þess augljós merki. Skýrslan er afar mikilvægur grunnur til að byggja á í áframhaldandi undirbúningi verkefnisins. Skýrslan verður tekin fyrir á bæjarstjórnarfundi nú í framhaldinu og fyrirhugað er að verkefnið verði skrefað áfram með hliðsjón af niðurstöðunum með það að markmiði að í Hveragerði rísi glæsilegur nýr þjónustukjarni til eflingar þjónustu við eldri íbúa. Gæðasamfélag fyrir allan aldur Okkar Hveragerði leggur ríka áherslu á gæðaríkt samfélag fyrir allan aldur þar sem fjölskyldan, frá yngstu meðlimum til þeirra elstu, geti notið þess sem lífið hefur uppá að bjóða til fulls. Hveragerði - bær í blóma! Höfundar skipa 2. og 12. sæti á lista Okkar Hveragerðis 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Eldri borgarar Hveragerði Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar