Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar 18. apríl 2026 09:33 Umræða um kostnað, verðbólgu og vexti snýst eðlilega mikið um heimilin. Það er fullkomlega eðlilegt. Fjölskyldur um allt land finna fyrir hækkandi vöxtum, auknu atvinnuleysi og mikilli óvissu í efnahagsmálum. En við verðum einnig að muna eftir fyrirtækjunum. Stórum og smáum. Framsókn kynnti því 16. apríl sl. aðgerðir til að styðja við fyrirtækin í landinu. Ein þeirra varðar tímabundna lækkun bensínverðs. Tillagan snýst um að lækka virðisaukaskatt og kolefnisgjald á eldsneyti með tímabundinni aðgerð frá 1. maí til 1. október nk. Þessi aðgerð er ekki aðeins hugsuð fyrir heimilin. Hún er líka hugsuð til að draga úr rekstrarkostnaði fyrirtækja sem byggja rekstur sinn á samgöngum, flutningum og daglegri notkun eldsneytis. Ef fyrirtæki fá ekkert svigrúm til að mæta auknum kostnaði endar sá kostnaður á endanum hjá almenningi. Hann fer út í verð á vöru og þjónustu. Hann eykur verðbólguþrýsting og veikir samkeppnishæfni þjóðarinnar. Kostnaðurinn lendir að lokum á öllum Staðreyndin er sú að fyrirtæki um allt land finna áfram fyrir áhrifum hækkandi kostnaði aðfanga og almennrar óvissu. Við héldum fyrir nokkrum mánuðum að verðbólga og vextir væru á niðurleið. En staðan er þveröfug. Vextir eru á uppleið. Staðan er einfaldlega slæm. Rekstrarkostnaður heldur áfram að hækka. Vaxtakjör eru fráleitt óhagstæð, bæði fyrir minni og stærri fyrirtæki og alla frumkvöðla sem hyggjast setja vörur á markað. Vextir á fyrirtækjalánum geta verið 11 til 12 prósent. Slíkt ástand er eðlilega ósjálfbært. Fyrirtæki geta ekki endalaust hagrætt eða fundið nýjar aðferðir til að lækka kostnað. Hærra eldsneytisverð hækkar einfaldlega flutningskostnað. Hærri álögur hækka rekstrarkostnað. Sá kostnaður fer síðan út í verðlagið. Landsbyggðin finnur þetta skýrt Fyrirtæki í ferðaþjónustu, flutningastarfsemi, landbúnaði og fleiri greinum treysta á að kostnaður við samgöngur sé fyrirsjáanlegur og viðráðanlegur. Það virðist hægara sagt en gert. Staðreyndin er sú að hækkanir á eldsneyti og gjöldum bitna sérstaklega hart á landsbyggðinni. Þar eru vegalengdir meiri. Valkostirnir eru færri. Landsbyggðin og fyrirtækin í landinu þurfa því meiri skilning. Sú aðgerð að lækka kolefnisgjald auk virðisaukaskatts á eldsneyti geturein og sér gæti lækkað verðbólgu um 0,4 prósent. Það er umtalsvert. Slík lækkun getur haft áhrif á væntingar, vexti og rekstrarskilyrði víða um hagkerfið. Fyrirsjáanleiki En fyrirtæki þurfa ekki aðeins lægri kostnað. Þau þurfa líka meiri fyrirsjáanleika. Heilbrigður rekstur byggir á því að hægt sé að treysta á forsendur áætlana, sjá fyrir útgjöld og taka ákvarðanir með einhverri vissu. Það er sérstaklega mikilvægt í greinum þar sem framlegð er lítil og samkeppnin hörð. Þetta á meðal annars við um ferðaþjónustu og samgöngufyrirtæki. Þar getur ófyrirsjáanlegur kostnaður raskað rekstrinum á skömmum tíma. Fyrirsjáanleiki er því ekki óskhyggja heldur lykilatriði í heilbrigðu rekstrarumhverfi. Ábyrgð felst líka í tímasetningu Kolefnisgjald byggist á málefnalegum rökum. Mengun á ekki að vera gjaldfrjáls. En ábyrg hagstjórn snýst líka um tímasetningu. Hún snýst um að skilja stöðuna sem heimili og fyrirtæki eru í hverju sinni. Þegar verðbólga er há og rekstrarkostnaður þungur er eðlilegt að grípa til tímabundinna aðgerða. Þetta á sérstaklega við nú þegar óvissa í alþjóðamálum litar alla efnahagsumræðu heimsins, hér sem annars staðar. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Þórarinn Ingi Pétursson Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar