Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. apríl 2026 12:47 Costas Kadis sjávarútvegsstjóri ESB segist hrifinn af því sem hann hefur séð hér á landi. Costas Kadis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir engar aðildarviðræður að sambandinu vera eins. Mörg dæmi séu um að tekið sé sérstakt tillit til mismunandi umsóknarríkja, líkt og í tilviki Íslands og sjávarútvegsmála. Hann segir samningaviðræður við sambandið raunverulegar samningaviðræður.
Þetta er meðal þess sem fram kom á sameiginlegum blaðamannafundi Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Kadis sem lauk fyrir skemmstu. Kadis kom til landsins í gær og heimsótti meðal annars Grindavík, auk þess sem til stendur að hann muni heimsækja sjávarútvegsfyrirtækið Brim í dag. Á fundinum sagði Kadis meðal annars að honum þætti mikið til koma af því sem hann hefði séð hér á landi. Nefndi hann sérstaklega sérþekkingu og frumkvöðlahlutverk íslenskra fyrirtækja. Kadis var meðal annars spurður hvort Ísland gæti samið sérstaklega um sjávarútvegsmál. Klippa: Blaðamannafundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Engin tvö aðildarferli eins „Leyfið mér að taka það skýrt fram að ég get ekki spáð fyrir um hver niðurstaða samningaviðræðnanna verður. Samningaviðræður eru raunverulegar samningaviðræður og þær eru ekki hafnar aftur enn þá. Það sem ég get sagt ykkur af okkar reynslu er að engin tvö aðildarferli eru eins. Hvert land er metið út frá eigin verðleikum, eigin aðstæðum – þessum sérkennum hvers lands,“ segir Kadis. Hann segist meðvitaður um að sjávarútvegsmálin skipti Íslendinga miklu máli. Hann tók fram að samningaviðræður væru ekki hafnar á ný þegar hann var spurður á ný hvort semja mætti sérstaklega um sjávarútvegsmál. „Ég ætla ekki að semja við þig núna, samningaviðræðurnar eru ekki hafnar enn. Það eru fjölmörg dæmi úr fyrri samningaviðræðum þar sem tekið er tillit til sérkenna umsóknarríkja.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjávarútvegur Evrópusambandið Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira