Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Kristján Már Unnarsson skrifar 16. apríl 2026 08:38 Icelandair hefur notað flugvélar af gerðinni Dash 8 Q200 í fluginu til Ísafjarðar. Sigurjón Ólason Vegagerðin og Icelandair hafa náð samkomulagi um flug til Ísafjarðar. Samningurinn gildir til fjögurra ára. Lágmarksfjöldi ferða er 452 hringferðir á ári.
Í fréttatilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að flug til Ísafjarðar hafi verið boðið út í byrjun árs. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á 1,3 milljarða króna fyrir heildarverkið. Aðeins eitt tilboð barst í verkið frá Icelandair upp á rúma 3,5 milljarða króna. Vegagerðin hafnaði tilboðinu en bauð Icelandair til samningsviðræðna sem staðið hafa síðustu vikur. Á grundvelli útboðs og samningsviðræðna var ritað undir samning í gær, miðvikudaginn 15. apríl. Heildarsamningsfjárhæð er krónur 1.690.480.000,- fyrir fjögur ár, að því er fram kemur í tilkynningunni. Samkvæmt samningnum verður lágmarksfjöldi flugferða 452 hringferðir á ári á samningstímabilinu frá 1. september 2026 til og með 31. ágúst 2030. Þetta er um 28,5% fækkun ferða miðað við það sem gert var ráð fyrir í upphaflegu útboði. Þetta er í samræmi við heimild um magnbreytingar samkvæmt útboðsgögnum. Samningstími við Icelandair er fjögur ár, frá og með 1. september 2026 og til og með 31. ágúst 2030 með heimild til framlengingar um eitt ár ef forsendur þykja fyrir því. Fjöldi flugferða á viku er breytilegur eftir árstíma. Þannig er miðað við minnst sjö ferðir á viku í janúar, febrúar, nóvember og desember, minnst níu ferðir í mars, apríl, september og október en yfir sumartímann frá maí og fram í ágúst verða farnar að minnsta kosti 10 ferðir á viku. Notast verður við Dash-8 Q200-vélar sem eru 37 sæta. Næstu skref eru að útfæra flugáætlun í samráði við hagsmunaaðila eftir þeim forsendum sem eru í samningnum og er gert ráð fyrir að sú vinna hefjist strax svo flugin geti verið komin í sölu innan skamms. Flugstöðin á Ísafjarðarflugvelli.Sigurjón Ólason Í tilkynningu er haft eftir Bergþóru Þorkelsdóttur vegamálastjóra að þau hjá Vegagerðinni séu ánægð með að hafa náð þessum samningi enda ekki sjálfgefið að hægt væri að ná samkomulagi. „Þessi niðurstaða er gríðarlega mikilvæg fyrir Vestfirðinga þar sem flugið er mjög mikilvægur þáttur í samgöngum fjórðungsins.“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segist einnig ánægður með að ná samkomulagi við Vegagerðina og halda áfram flugi til Ísafjarðar. „Flugleiðin er mikilvæg fyrir íbúa á Vestfjörðum, en einnig teljum við tækifæri fólgin í því að þessi frábæri áfangastaður verði áfram aðgengilegur í sölu- og dreifikerfi okkar fyrir viðskiptavini okkar í Evrópu og Norður-Ameríku.“ Hér má sjá flugtak og lendingu Dash 8 Q200 vélar Icelandair á Ísafjarðarflugvelli:
Ísafjarðarbær Icelandair Samgöngur Fréttir af flugi Bolungarvík Súðavíkurhreppur Reykjavíkurflugvöllur Tengdar fréttir Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Skilyrði útboðs Vegagerðarinnar um að flugvél með jafnþrýstibúnaði þyrfti í Ísafjarðarflug útilokaði Norlandair frá því að geta boðið í flugleiðina. Framkvæmdastjóri Norlandair segir að flugtæknilega sé þetta ekki nauðsynleg krafa. 10. apríl 2026 06:56 Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Fleiri fréttir Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Sjá meira
Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Skilyrði útboðs Vegagerðarinnar um að flugvél með jafnþrýstibúnaði þyrfti í Ísafjarðarflug útilokaði Norlandair frá því að geta boðið í flugleiðina. Framkvæmdastjóri Norlandair segir að flugtæknilega sé þetta ekki nauðsynleg krafa. 10. apríl 2026 06:56