Trump hjólar í páfa Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. apríl 2026 06:46 Trump sagði páfa slakan gagnvart glæpum og hræðilegan í utanríkismálum. Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn gegn Leó páfa á samfélagsmiðlum í nótt og í samtali við fréttamenn. Hann sagðist ekki aðdáandi páfa, sakaði hann um að ganga erinda vinstri manna og sagðist ekki vilja páfa sem þætti það í lagi að Íranir eignuðust kjarnavopn.
Þá eignaði Trump sér heiðurinn af því að Leó hefði verið kjörinn páfi og sagði hann aðeins hafa orðið fyrir valinu þar sem hann væri frá Bandaríkjunum og kaþólska kirkjan hefði talið hann vænlegasta kostinn á meðan Trump væri forseti. Páfi ætti að vera þakklátur og hætta að gagnrýna Trump. „Ef ég hefði ekki verið í Hvíta húsinu væri Leó ekki í Vatíkaninu,“ sagði forsetinn á Truth Social. „Því miður þá er Leó slakur gagnvart glæpum, slakur gagnvart kjarnavopnum. Það situr ekki vel í mér.“ Forsetinn sagði páfa ættu að einbeita sér að því að vera páfi, ekki pólitíkus. Leiða má líkur að því að Trump hafi tekið til sín þá gagnrýni sem páfi hefur viðhaft án þess þó að nefna hann á nafn en Leó sagði meðal annars á dögunum að Guð bænheyrði ekki þá sem stæðu í stríðsrekstri, heldur lokaði eyrunum fyrir bænum þeirra. Þá gerði hann því skóna um helgina að stríðið í Íran byggði á „ranghugmyndum um almætti“. Þess ber að geta að ráðamenn vestanhafs hafa gert því skóna að Trump hafi Guð með sér í liði í hernaðaraðgerðum sínum. Um það bil 55 prósent kaþólskra í Bandaríkjunum greiddu Trump atkvæði í forsetakosningunum árið 2024.
Bandaríkin Donald Trump Páfagarður Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira