Sænskan gengur hægt en allt annað upp á tíu Valur Páll Eiríksson skrifar 11. apríl 2026 15:30 Linda Líf Boama fer frábærlega af stað í Svíaríki og mætir full sjálfstrausts í landsleikina. Vísir/Bjarni „Þetta er heiður og það er gaman að vera hérna,“ segir Linda Líf Boama, sem er í fyrsta sinn í landsliðshópi kvenna í fótbolta. Hún hefur farið vel af stað í atvinnumennsku og var verðlaunuð með landsliðssæti.
Hvernig var að fá símtalið frá landsliðsþjálfaranum? „Ég var glöð. Þetta er ekki þannig frásögufærandi. En þetta er góð minning fyrir mig, ég vaknaði við þetta og ræddi við hann,“ segir Linda sem segir valið ekki endilega hafa komið á óvart. Klippa: Sænskan gengur hægt en allt annað upp á tíu „Maður reynir alltaf að bæta sig með hverri æfingunni og maður fór út í atvinnumennsku. Þannig að maður er að sýna það að maður er í þessu til að gera þetta vel. Þetta helst bara í hendur við metnaðinn og plönin.“ Líkt og Linda nefnir fór hún út í atvinnumennsku í vetur þegar Kristianstad, undir stjórn Niks Chamberlain, fyrrverandi þjálfara Breiðabliks og Þróttar, keypti hana frá Víkingi. Linda þekkir til Niks eftir að hafa leikið undir hans stjórn hjá Þrótti. Óhætt er að segja að Linda hafi farið vel af stað í fyrstu verkefnunum í atvinnumennskunni. Hún skoraði þrjú mörk og lagði upp eitt í fyrstu tveimur deildarleikjunum sem unnust báðir. „Þetta er bara geggjað. Þetta er frábært lið, frábær bær. Það var tekið ótrúlega vel á móti mér og ég hef bara ekkert neikvætt að segja,“ segir Linda. Þá hjálpar að taka fyrstu skrefin í atvinnumennsku í Íslendinganýlendu í Kristianstad. „Já, algjörlega. Nema að læra sænskuna, maður er aðeins og mikið í íslenskunni, en maður er að læra þetta. Ég er í sænskutímum svo það er eins gott að maður pikki þetta upp,“ segir Linda sem gat vart beðið um betri byrjun á leiktíðinni. „Er það ekki? Það er gott fyrir framherja að koma með svona gott veganesti inn í þetta verkefni. Það er gott að hafa sjálfstraust og kassann úti,“ „Þetta er svo svakalega gott lið. Þið sjáið það á þessum mörkum. Þetta eru geggjaðar sendingar og góðar hreyfingar á öllum. Það er eiginlega ekki hægt annað en að slútta þessu,“ segir Linda. Linda er hluti af landsliðshópi Íslands sem mætir Úkraínu á þriðjudag og Englandi næsta laugardag. Báðir leikirnir fara fram á Laugardalsvelli. Viðtalið við Lindu má sjá í spilaranum.
Sænski boltinn Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira