Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir skrifar 10. apríl 2026 08:31 Það er eitthvað sérstakt við Nesið. Að búa svona nálægt hjarta Reykjavíkur en samt vera umvafin kyrrð og náttúrufegurð eru forréttindi sem ég met mikils. En þrátt fyrir allt það góða sem Seltjarnarnes hefur upp á að bjóða hefur rödd ungs fólks veikst í ákvarðanatöku bæjarstjórnar síðustu ár. Þetta hefur haft margvísleg áhrif á umhverfi ungs fólks í bænum. Aðdráttarafl fyrir ungt fólk Of margir sem alast upp á Nesinu núna sjá ekki fram á að geta flutt aftur í bæjarfélagið eftir að þau flytja úr foreldrahúsum. Ungar barnafjölskyldur sjá ekki fram á að geta skotið rótum hérna vegna þess að húsnæðið sem byggt hefur verið upp á síðkastið er þeim að stórum hluta utan seilingar. Það hefur engin markviss stefna verið hjá bænum sem snýr að því að byggja húsnæði fyrir fyrstu kaupendur. Þessu þarf að breyta með skýrri stefnu í skipulags- og byggingarmálum, þar sem lögð er áhersla á fjölbreytni og raunhæf tækifæri fyrir fyrstu kaupendur. Sterkur bæjarandi byggir á fjölbreyttum hópi fólks á öllum aldri. Ef unga fólkið hverfur tapar bærinn lífi og grafið er undan framtíð bæjarins. Því er það hagsmunamál allra að huga að því að skapa tækifæri fyrir ungt fólk og barnafjölskyldur til að flytja í bæinn. Forvarnarstarf Forvarnarstarf er mikilvægur þáttur í umhverfi ungs fólks á Seltjarnarnesi en á undanförnum árum hefur verið dregið markvisst úr því. Gerð var sú breyting árið 2020 af bæjarstjórn að staða æskulýðsfulltrúa var felld niður og forstöðumaður Selsins var ekki lengur fullt starf. Þetta var gert þrátt fyrir mikla óánægju hjá foreldrum og ungmennum í bæjarfélaginu. Það var skref í ranga átt. Staður eins og Selið, sem er samkomustaður fyrir unglinga þar sem þau geta verið í öruggu umhverfi undir handleiðslu fullorðinna, er lykillinn að góðu forvarnarstarfi. Ég hef séð það sjálf sem ungmenni á Nesinu og í starfi mínu í Selinu. Unglingsárin eru viðkvæmur tími þar sem rétt umgjörð skiptir máli. Í dag er starfsemi Selsins verulega skert. Forstöðumaður er enn ekki í fullu starfi og opnunartími fyrir 8.-10.bekk takmarkast við þrjú kvöld í viku og eina dagopnun, aðeins tvær klukkustundir í senn oghádegisopnun einu sinni í viku fyrir hvern árgang. Þegar ég var í Valhúsaskóla var Selið opið alla virka daga fram á kvöld og það skipti sköpum. Það þarf að auka þjónustu Selsins á ný. Það þarf skýra forgangsröðun í rekstri bæjarins þar sem þjónusta við börnin okkar verður ekki undir. Ef við sinnum ekki forvörnum nægilega vel þá eru það börnin okkar sem bera kostnaðinn. Það er einfaldlega ekki ásættanlegt. Bæjarlífið Skemmtilegt og spennandi bæjarlíf er hluti af umhverfi ungs fólks, sem og allra aldurshópa á Seltjarnarnesi. Ég hef, í samtölum mínum við bæjarbúa, tekið eftir því að bæjartilfinningin fer dvínandi og þá sérstaklega eftir að félagsheimilinu var lokað, árið 2020. Því var lokað „vegna framkvæmda” en hefur í rauninni staðið í sex ár eins og minnisvarði um framkvæmdaleysi og eitthvað sem einu sinni var. Þegar ég var í Valhúsaskóla tók ég þátt í mörgum leikritum í félagsheimilinu og fór einnig á tónleika þar oft, sem voru mjög skemmtilegir. Þetta skiptir máli fyrir börnin á Seltjarnarnesi og fyrir menningarlífið allt. Við þurfum aftur slíkan samkomustað þar sem bæjarlífið fær að blómstra. Hvað þarf að gera? Til að þetta allt sé mögulegt þarf að taka til í rekstri bæjarins og setja þjónustu við íbúa í forgang. Án þess verður hvorki hægt að skapa húsnæði fyrir ungt fólk, styrkja forvarnarstarf né byggja upp öflugt bæjarlíf. Staðan í dag er alvarleg; á síðustu tíu árum hefur bæjarfélagið safnað upp tapi upp á rúmlega þrjá milljarða króna, sem endurspeglar viðvarandi hallarekstur ár eftir ár. Þetta er ekki tímabundið ástand heldur þróun sem hefur fest sig í sessi. Ef henni verður ekki snúið við blasir við áframhaldandi niðurskurður á þjónustu við íbúa, þar á meðal við börn og ungt fólk. Það þarf sterka rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi því málefni okkar fá ekki hljómgrunn að sjálfu sér. Þess vegna býð ég mig fram í 4.sæti hjá Samfylkingunni, Viðreisn og óháðum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Ég hvet bæjarbúa til þess að setja X við Seltjarnarnes! Höfundur er fædd og uppalin a seltjarnarnesi og nemandi við HÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Seltjarnarnes Samfylkingin Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar