„Ég vildi óska þess að ég hefði ekki verið svona mikið veik“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2026 10:22 Norska handboltakonan Nora Mörk hefur lengi verið í hópi bestu handboltakvenna heims og unnið marga titla með norska landsliðinu. Getty/Alex Davidson Norska handboltakonan Nora Mörk hefur verið fjarverandi í nokkrum leikjum Esbjerg undanfarið og segir nú frá ástæðunni.
Á meðan Team Esbjerg hefur tryggt sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar og unnið deildarkeppnina í dönsku deildinni hefur það að hluta til verið án Noru Mörk á vellinum. „Ég hef legið og hlaðið batteríin í góðan tíma. Þannig að það hefur verið gaman að spila smá handbolta aftur,“ sagði Nora Mørk í viðtali við TV2-sjónvarpsstöðina. Mörk var ekki með í síðasta landsliðsverkefni norska kvennalandsliðsins í febrúar. Þetta var alveg svakalegt „Þetta var alveg svakalegt. Magapest, streptókokkar, hiti og allt mögulegt. Ég hef verið frekar slöpp en er núna næstum því komin til baka,“ sagði Mörk. Hún hefur því farið í gegnum næstum allan veikindalistann sem móðir smábarns. Mørk varð móðir dótturinnar Tyru í maí á síðasta ári, sem er núna byrjuð í leikskóla. Það hefur bitnað bæði á móðurinni og föðurnum, Jerry Tollbring sem er sænskur handboltamaður. Verið smá streituvaldur „Líkamlega formið hefur kannski verið betra en það er núna – það var best í desember. Þetta hefur verið smá streituvaldur þegar ég næ ekki að hámarka frammistöðuna – það er svolítið erfitt þegar ég ligg og æli,“ sagði Mörk með bros á vör. „En maður verður að gera sitt besta. Ég vildi óska þess að ég hefði ekki verið svona mikið veik, en því fæ ég ekki breytt. Ég get spilað handbolta núna og svo verðum við að vona að líkaminn haldist í lagi það sem eftir er af tímabilinu,“ sagði Mörk. Hefur ekki fengið að hitta barnið Hún er nú með norska landsliðinu. Það er góð tilbreyting frá erfiðu veikindatímabili – og ánægjulegir endurfundir með liðsfélaga og nágranna, Henny Reistad, besti handboltakonu heims undanfarin ár. „Henny frænka þurfti að vera í einangrun. Við gátum ekki tekið neina áhættu. Mars hefur verið erfiður fyrir hana líka. Hún hefur ekki fengið að hitta Tyru, en þar hef ég verið mjög ákveðin,“ sagði hin 35 ára gamla Mörk og horfir á Reistad. „Það hefur gerst einu sinni að hún smitaðist af magapest og við höfum ekki efni á því núna. Þannig að það hafa verið strangar reglur,“ sagði Mörk og hlær.
Norski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira