„Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2026 09:02 Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, gengur niðurlútur af velli eftir tapið á móti Paris Saint-Germain á Parc des Princes í gærkvöldi. Getty/Harry Langer Liverpool slapp kannski með 2-0 tap frá París í gær en er í erfiðum málum fyrir seinni leikinn á móti Paris Saint-Germain í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Meistaradeildarmessan velti fyrir sér stöðunni hjá Liverpool. „
Hvað þarf Liverpool að gera, Atli Viðar, til þess að snúa þessu einvígi sér í hag,“ spurði Kjartan Atli Kjartansson. Ekkert hissa að sjá nýjan mann á hliðarlínunni „Fyrir mér er eiginlega eini sénsinn að það verði svona einhver slagkraftur, eitthvað mómentum á Anfield í næstu viku. Þannig að það verði einhver nýr þjálfari á hliðarlínunni,“ sagði Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur í Meistaradeildarmörkunum. „Fólkið trúir ekki lengur á Slot og hugmyndafræðina hans. Það er ekki sami slagkraftur á bak við liðið eins og var frá stuðningsmönnunum, búið að púa á liðið á heimavelli og annað slíkt. Þannig að ég yrði bara ekkert svakalega hissa þó við sjáum nýjan mann á hliðarlínunni,“ sagði Atli Viðar. Ég held að þetta sé búið hjá honum „Heldurðu að þeir láti hann fara eftir þetta,“ spurði Kjartan Atli. „Ég er ekki að segja að ég haldi það en ég verð ekki hissa. Mér finnst svona einhvern veginn eins og ég talaði um áðan með. Þetta var örvænting í því hvernig hann fór inn í leikinn í kvöld og svona pínu ráðaleysi,“ sagði Atli Viðar. Klippa: Umræða um Arne Slot og Liverpool „Ég held að þetta sé búið hjá honum. Það er bara spurning hvort ljós verði slökkt og búið að sópa fyrir næstu viku eða hvort það verði ekki fyrr en í vor,“ sagði Atli. „Það er eitt skrítið sem við erum ekkert að tala um núna. Við höfum ekki minnst einu orði á Salah,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, sérfræðingur í Meistaradeildarmörkunum. „Ef við hefðum setið hérna í sumar og sagt: Heyrðu, eftir nokkra mánuði þá er liðið að spila á móti Parísarliðinu í undanúrslitum, hann er ekki að spila og við munum ekki tala einu orði um hann,“ sagði Arnar en Mohamed Salah var ónotaður varamaður í þessum mikilvæga leik. Ótrúleg staða sem er komin upp hjá Liverpool „Við hefðum allir verið settir inn á hæli eða eitthvað. Þannig að þetta er ótrúleg staða sem er komin upp hjá Liverpool. Hversu fúll var hann á bekknum þegar myndavélinni var beint að honum,“ spurði Arnar. „Hann var að reyna að vera rólegur, alveg að springa inni í sér,“ sagði Arnar. Arnar nefndi síðasta dansinn „Ég held við þurfum bara að fá einhverja gamla góða Anfield-geðveiki til að þeir eigi möguleika og þá þarf að einhvern veginn að stilla Salah inn á það: Þetta er bara síðasti dansinn sem er að koma núna. Reynum að sættast og reynum að fá svolítið stemninguna með okkur,“ sagði Arnar. „Þá eiga þeir kannski möguleika af því að þú getur ekki spilað varnarleik á Anfield og ætlast til að komast upp með,“ sagði Arnar. Það má horfa á alla umræðuna hér fyrir ofan.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Liverpool FC Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira