Bestum borgina með fólkið í forgrunni Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar 7. apríl 2026 20:01 Píratar þora að hugsa stórt. Við þorum að bæta ferla, einfalda kerfi og finna lausnir sem skila betri niðurstöðu fyrir borgarbúa, ekki bara í dag heldur til framtíðar. Reykjavík verður ekki sterkari af stöðnun, heldur af hugrekki til að endurskoða, bæta og þróa. Hagkvæmni án framtíðarsýnar er skammtímalausn. Sönn bestun snýst um að horfa á stóru myndina, hafa yfirsýn yfir rekstur og þjónustu borgarinnar og taka ákvarðanir sem skila árangri til lengri tíma. Við eigum að byggja borg sem er sveigjanleg, skilvirk og tilbúin fyrir áskoranir morgundagsins. Hlustum Það sem skiptir mestu máli er að hlusta. Hlustun er ekki formsatriði heldur forsenda góðrar ákvarðanatöku. Borgin býr yfir mikilli þekkingu í starfsfólki sínu og borgarbúar búa yfir reynslu, hugmyndum og innsýn sem stjórnsýslan þarf að nýta betur. Þegar þessi tvö sjónarhorn mætast verða til lausnir sem virka í reynd. Við viljum efla beint lýðræði þannig að rödd borgarbúa hafi raunveruleg áhrif. Hverfisstjórnir og skýrari upplýsingagjöf geta fært borgina nær fólkinu og gert ákvarðanir betri. Þegar íbúar hafa aðkomu að eigin nærumhverfi verður borgin ekki aðeins réttlátari heldur líka öflugri. Kjósum frelsi Frelsi fólks er lykillinn í stefnu Pírata. Gerum Reykjavík að borg valfrelsis í samgöngum. Hönnum borgina svo fólk geti valið ferðamáta sem passar þeim best hverju sinni, hvort sem það er gangandi, hjólandi, hoppandi, í strætó eða keyrandi á einkabílnum. Aukum valfrelsi á öllum sviðum borgarinnar. Það á að vera auðvelt fyrir íbúa að hreyfa sig innan kerfisins sem við byggjum og Reykvíkingar eiga að upplifa að þeim standi allar dyr opnar. Öryggi er grunnforsenda góðrar borgar. Reykjavík á að vera borg þar sem börn, ungmenni, hinsegin fólk og fólk með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn getur lifað, hreyft sig og tekið þátt án ótta. Þangað eigum við að stefna af festu og með skýra framtíðarsýn. Raunveruleg framtíðarsýn Píratar hafa unnið að þessari sýn frá fyrsta degi með borgarbúa í huga. Við höfum staðið fyrir umbótum sem hafa skipt raunverulegu máli, allt frá því að auka gagnsæi, efla mannréttindi, iðka skaðaminnkun, styrkja húsnæðisstefnu borgarinnar, opna bókhaldið bæta borgarhönnun og besta stafrænar lausnir. Það er þessi tegund af pólitík sem skilar árangri: hugrökk, gagnreynd og mannleg. Við stöndum nú á tímamótum og næstu skref skipta máli. Við eigum að velja framtíð sem byggir á þátttöku, trausti og skýrri sýn á það hvernig Reykjavík getur orðið betri fyrir fleiri. Höfundur er formaður Pírata Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Píratar Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar