Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. apríl 2026 09:03 Andri Stefan skoraði eftirminnilegt jöfnunarmark fyrir Hauka í Palau Blaugrana, heimavelli Barcelona, fyrir 23 árum. sýn sport Í fjórða þætti Augnablikanna bregðum við okkur 23 ár aftur í tímann og rifjum upp frægt mark Andra Stefan sem tryggði Haukum frækið jafntefli gegn Barcelona.
Palau Blaugrana, heimavöllur Barcelona, var sannkallað gin úlfsins á þessum tíma. Þegar Haukar mættu þangað í leik í Meistaradeild Evrópu í nóvember 2003 hafði Barcelona unnið fjörutíu Evrópuleiki í röð á heimavelli, eða alla heimaleiki sína síðan í mars 1997. Þrátt fyrir það var enginn beygur í Haukum sem náðu jafntefli gegn Barcelona, 27-27. Andri, þá nítján ára, skoraði jöfnunarmarkið með skoti fyrir aftan bak í hraðaupphlaupi í þann mund sem leiktíminn rann út. „Allt sem ég man fyrir og eftir er eitthvað sem ég hef séð í sjónvarpi. Þetta er svolítið mín upplifun,“ sagði Andri er hann rifjaði leikinn 22. nóvember 2003 upp. Klippa: Augnablikin - Kraftaverkið í Barcelona Eftir að Andri kom boltanum í netið hópuðust samherjar hans ofan á hann við hliðarlínuna. „Boltinn endar í höndunum á mér og næst er ég undir öllu Haukaliðinu. Þetta er skemmtileg raunminning en þegar maður horfir á þetta í sjónvarpinu sér maður þetta sekúndu fyrir sekúndu og þá er þetta allt mjög dramatískt og skemmtilegt augnablik,“ sagði Andri. „Það er ekkert gaman að fá heilt handboltalið ofan á sig. Þetta var ekkert þægileg upplifun en adrenalínið var á fullu þannig að sársaukinn var ekki mikill.“ Andri vann fjölda titla sem leikmaður Hauka og var hluti af liði U-18 ára landsliði Íslands sem varð Evrópumeistari 2003. Hann lék einnig með Val og norska liðinu Fyllingen. Brot úr „Kraftaverkinu í Barcelona“, fjórða þætti Augnablikanna, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þáttinn í heild sinni má nálgast á efnisveitu Sýnar Sport.
Augnablikin Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Haukar Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira