„Það er búinn að vera stígandi í hópnum í allan vetur“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 3. apríl 2026 17:26 Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks. Hulda Margrét Breiðablik sigraði FH 3-1 í Meistarakeppni kvenna í dag. Blikar unnnu bæði Íslandsmeistaratitilinn og Mjólkurbikarinn og innsigluðu nafnbótina meistari meistaranna með sigrinum í dag í Meistarakeppninni. „
Við byrjuðum leikinn vel og gekk fyrri hálfleikur vel upp hjá okkur. Við vorum í smá brasi á köflum með hápressuna en heilt yfir góð byrjun og flottur leikur af okkar hálfu,“ sagði Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, eftir leikinn. Ian tók við liðinu eftir síðasta tímabil og hefur þurft að endurbyggja hópinn að einhverju leyti eftir að lykilleikmenn voru seldir frá félaginu. Ungir leikmenn hafa stigið upp og tekið miklum framförum eins og sást í dag. „Leikmenn sem voru kannski ekki í stóru hlutverki í fyrra hafi stigið upp og það er það sem við vorum að vonast eftir. Leikmenn sem voru í lykilhlutverkum í fyrra hafa svo stigið enn frekar og við erum mjög ánægð með það líka. Það er gott jafnvægi og þetta lítur ágætlega út.“ „Það er búinn að vera stígandi í hópnum í allan vetur. Við fórum seint af stað og fengum erfiða evrópuleiki á móti Hacken sem er mjög gott lið en það var frábær undirbúningur fyrir okkur. Þar lentum við í smá mótlæti sem styrkir okkur og mér finnst við hafa náð að svara fyrir það.“ Blikar sóttu markvörð frá Bandaríkjunum á dögunum en hún mun veita Herdísi Höllu Guðbjartsdóttur samkeppni um markvarðarstöðuna í sumar. Ian talaði þó einnig um fleiri leikmenn sem væru að koma úr meiðslum eða háskóla í Bandaríkjunum og býst hann við aukinni samkeppni um ýmsar stöður vallarins. „Herdís er okkar aðalmarkvörður og Taylor vissi að hún kæmi á þeim forsendum að við værum með markvörð. Hún er að koma til okkar til að berjast um sæti og veita Herdísi samkeppni. Hún þarf að vera á tánum eins og með alla aðra leikmenn. Það er samkeppni og við viljum auka samkeppnina og hafa meiri breidd.“
Fótbolti Breiðablik Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Sport „Hann sagði já takk“ Fótbolti Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Sjá meira