Svo mikill hagvöxtur og svo mikil framför! - Tími nýfrjálshyggjunnar Davíð Aron Routley skrifar 1. apríl 2026 08:45 Á 30 árum hefur verg landsframleiðsla farið úr 477 milljörðum á ári í næstum því 5000 milljarða árið 2025, Ice GDP(2025). Það er um það bil tíu sinnum meira!, Þvílík framför á einni lítilli eyju í Atlantshafi. Hér eru helstu “framfarir” sem ég get talið upp: Heilbrigðiskerfið Þvílík framför á heilbrigðiskerfinu en fyrir 30 árum voru fleiri læknar og fleiri sjúkrarúm á hvern íbúa. Fyrir óléttar konur var boðið upp á lengri dvöl á vöggustofum sem er óþarfur kostnaður Í dag er þeim sparkað út um leið og klippt er á naflastrenginn. Hver nennir að dúsa á spítalanum þegar næsta ólétta kona þarf að komast að? Tími er peningur! Og það á sérstaklega vel við heilbrigðisþjónustu sem líkist undirmönnuðum veitingastað. Hvar er best að spara en á starfsmönnum í heilbrigðisþjónustu? Hver þarf herbergisrými þegar hægt er að nota bílakjallarann? Ég hef ekki heyrt neinn kvarta yfir því að þurfa að bíða þar eftir að komast í lögn. Það er alltaf nóg að gera á bráðamóttökunni, sem er enn ein ástæða til að einkavæða heilbrigðiskerfið svo meiri peningur komi inn í hagkerfið. Matvælakerfið Hvað er betra en einkavætt heilbrigðiskerfi? Auðvitað matvælakerfi sem byggir á skyndibita og nammi, með öðrum orðum gjörunnum matvælum sem kostar heilbrigðiskerfið milljónir á ári til að bregðast við. En Gögn frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) og nýlegar umsagnir flokka óhollt mataræði sem eitt af helstu breytanlegum áhættuþáttum fyrir ósmitandi sjúkdóma um allan heim Clemente-Suárez, V. o.fl. (2024). Ekki nóg með að hægt sé að græða á veikindum fólks, heldur er líka frábært að vera með matvælakerfi sem græðir á því að gera fólk óheilbrigt. Það eru kjöraðstæður fyrir hagkerfið og hefur auðvitað engar neikvæðar afleiðingar á samfélagið í heild. Lýðheilsa Í dag er Ísland að vinna keppnina í flestum uppáskrifuðum þunglyndis og kvíðalyfjum á hvern 1000 íbúa. Sterkar fylgnirannsóknir tengja ójöfnuð, óöryggi og félagslega einangrun nýfrjálshyggjutímans við verri geðheilsu bæði hjá íbúafjölda og einstaklingum, Zeira, A. (2021),.Occhipinti, J., o.fl. (2024), Becker, J. o.fl. (2021).Sem eru frábærar fréttir fyrir einkavætt heilbrigðiskerfi og lyfjafyrirtæki. Versnandi geðheilsa er náttúrulega gullnáma fyrir hagkerfið og að sjálfsögðu engar neikvæðar afleiðingar fyrir samfélagið. Húsnæðiskerfið Í “gamla daga” var allt of auðvelt að kaupa sér húsnæði. Að húsvörður og ritari gætu keypt sér einbýlishús og alið upp fjögur börn án þess að fara á hausinn? Út í hött! Í dag eru barnabörnin þeirra í miklu “betri” stöðu. Í dag getur 26 ára einstaklingur búið með makanum sínum inn á heimili foreldra hans til þess að safna fyrir útborgun og fjárfesta í lítilli íbúð. Loksins þegar þau komast inn á markaðinn á verðtryggðu láni geta þau sett aukapening sem þau eiga til hliðar inn á lánið sitt, bara svo það sér lánið sitt lækka. Það er frábært fyrir hagkerfið og er miklu hentugra en að eyða peningum á markaðnum, opna sitt eigið fyrirtæki eða stofna fjölskyldu. Byggingar Þvílík fegurð að sjá nýjar byggingar spretta upp eins og dauð tré á veturna. Hvað er betra en gráar “Minecraft” byggingar? Hver þarf liti þegar þú hefur íslenskt veðurfar? Gamli Landspítalinn, byggður í byrjun 20. aldar, stendur enn. En sú bygging er náttúrulega skömm miðað við nýja minecraft spítalann hvað varðar fegurð. Skólabyggingar hafa ekki fengið almennilegt viðhald í marga áratugi og margir af þeim eru myglaðir. Því lengur sem beðið er með almennilegt viðhald því dýrara verður að leysa vandamálið og það væntanlega skilar sér inn í meiri hagvöxt. Svo er auðvitað aukinn bónus með mygluna en hún styrkir öndunarvegi og taugakerfi nemenda og starfsmanna í skólanum. Það bætir læsi þeirra og auðveldar nemendum að læra og kennurum að kenna. En það er svona það sem drepur þig ekki, styrkir þig bara hugmyndafræði nýfrjálshyggjunar í þessu tilfelli. Hugbúnaður Ég man þegar ég þurfti að tala við starfsmenn á kassanum í matvöruverslunum, þvílíkur horbjóður. Í dag er lífið tíu sinnum betra því nú get ég afgreitt mig sjálfur. Hvað þá að hringja í dominos og panta pizzu þegar ég get gert það í appinu. Í þá daga var ég svo stressaður að tala í símann að ég pantaði mér einu sinni pizzu með svömpum!. Núna er ég algjörlega áhyggjulaus þegar ég panta mér pizzu. Svo eru það bílastæðaöppin. Þvílík tækninýjung, ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki öll þessi bílastæðaöpp. Frábær hugmynd væri svo að búa til app svo hægt sé að skrá sig inn sem sjúklingur í bílakjallaranum á landspítalanum. Vegakerfið Vegakerfið í dag er nánast eins og það var fyrir 30 árum, allt í holum.En til hvers að laga eitthvað sem er nú þegar ónýtt? Í dag, í stað þess að börnin séu í símanum sínum, geta þau talið hversu margar holur eru á veginum. Úr því er hægt að gera frábæran leik og mikill lærdómur í því að telja. Og svo er alveg yndislegt þegar bílstjórinn keyrir ofan í holurnar og bíllinn hossast upp og niður sem er frí afþreying fyrir alla fjölskylduna. En nánast ekkert er frítt á tímum nýfrjálshyggjunnar. Afþreying Að gera eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni í dag er auðvitað tíu sinnum betra en það var fyrir 30 árum. Í dag er hægt að bjóða fjögurra manna fjölskyldu að eyða 20 þúsund krónum í að fara út að borða á Kúmen og svo í bíó. Svo stendur Ikea alltaf fyrir sínu þar sem hægt er að eyða Sunnudeginum í að kaupa endingargóð húsgögn. Námsárangur Ofan á allt hrun geðheilsu síðustu ára sem gerir börnum erfiðara með að læra þá er læsi barna að versna. Er það slæmt eða gott fyrir nýfrjálshyggjuna?...... Það er geðveikt frábært! Því verri gagnrýna hugsun einstaklingar eru með því auðveldara er að selja þeim þá hugmynd að nýfrjálshyggjan er frábært kerfi. Að bæta læsi barna væri skelfilegt fyrir nýfjrálshyggjuna og hagkerfið. Af hverju vilja Íslendingar ekki fjölga sér? Allt sem ég hef talið upp hlýtur að láta Íslendinga vilja fjölga sér eins og kanínur, en ég skil bara engan veginn af hverju þeir eru ekki að gera það miðað við þessa jákvæðu þróun síðustu áratugi. Margir stjórnmálamenn vilja sýna þakklæti sitt til nýju ríkisstjórnarinnar sem hefur verið við völd síðustu tvö árin eða jafnvel til innflytjenda fyrir þessa framþróun. En ég aftur á móti vil standa upp og þakka ríkisstjórnunum síðustu 30-40 árin fyrir þessa framþróun. Því ekkert af þessu væri mögulegt nema með þeirra framlagi. Höfundur skipar 13. Sæti Sósialista í Reykjavík. Heimildir: Zeira, A. (2021). Mental Health Challenges Related to Neoliberal Capitalism in the United States. Community Mental Health Journal, 58, 205 - 212. https://doi.org/10.1007/s10597-021-00840-7. Occhipinti, J., Skinner, A., Doraiswamy, P., Saxena, S., Eyre, H., Hynes, W., Geli, P., Jeste, D., Graham, C., Song, C., Prodan, A., Ujdur, G., Buchanan, J., Rosenberg, S., Crosland, P., & Hickie, I. (2024). The influence of economic policies on social environments and mental health.. Bulletin of the World Health Organization, 102 5, 323-329 . https://doi.org/10.2471/blt.23.290286. Becker, J., Hartwich, L., & Haslam, S. (2021). Neoliberalism can reduce well-being by promoting a sense of social disconnection, competition, and loneliness.. The British journal of social psychology. https://doi.org/10.1111/bjso.12438. Clemente-Suárez, V., Peris-Ramos, H., Redondo-Flórez, L., Beltrán-Velasco, A., Martín-Rodríguez, A., David-Fernandez, S., Yáñez-Sepúlveda, R., & Tornero-Aguilera, J. (2024). Personalizing Nutrition Strategies: Bridging Research and Public Health. Journal of Personalized Medicine, 14. https://doi.org/10.3390/jpm14030305. Ice GDP (2025) https://www.ceicdata.com/en/iceland/gross-domestic-product-oecd-member-annual/gross-domestic-product Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Davíð Aron Routley Mest lesið Grænlendingar veiða þorsk frá Íslandi Finnbogi Vikar Guðmundsson Skoðun Fagmennska, frumkvæði og frelsi lækna Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson Skoðun Tilraun til þess að skilja hægri slagsíðu stjórnmálanna á Íslandi í dag Guðrún Elísa Sævarsdóttir Skoðun Halldór 16.05.2026 Halldór Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samfélagið eftir kosningar Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Tilraun til þess að skilja hægri slagsíðu stjórnmálanna á Íslandi í dag Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar Skoðun Grænlendingar veiða þorsk frá Íslandi Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Loftslagsbreytingar: tölum um lausnir Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fagmennska, frumkvæði og frelsi lækna Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind skrifar Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason skrifar Skoðun Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hlustið á fólkið! Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Veljum að gera betur Ingvar P. Guðbjörnsson skrifar Skoðun Áheyrn og árangur í skólamálum í Hveragerði Halldóra Jóna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Sjá meira
Tilraun til þess að skilja hægri slagsíðu stjórnmálanna á Íslandi í dag Guðrún Elísa Sævarsdóttir Skoðun
Skoðun Tilraun til þess að skilja hægri slagsíðu stjórnmálanna á Íslandi í dag Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar
Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar
Tilraun til þess að skilja hægri slagsíðu stjórnmálanna á Íslandi í dag Guðrún Elísa Sævarsdóttir Skoðun