Hjólum í þetta Óli Örn Eiríksson skrifar 31. mars 2026 11:00 Síðustu ár hafa hjól verið æ algengari fararmáti á Íslandi. Þetta er alþjóðleg þróun sem hefur verið að ná fótfestu hér á landi. Þessi þróun tók svo auka kipp með tilkomu rafmagnshjóla og rafhlaupahjóla sem gera fleirum kleift að fara leiðar sinnar hjólandi. Hagkvæmur, hollur og vannýttur samgöngumáti Stór hluti af ferðum okkar flestra er innan við þrír kílómetrar - vegalengd sem má auðveldlega hjóla á 10 mínútum. Á rafhjóli stækkar 10 mínútna svæðið upp í 5–7 km. Heilsuáhrif hjólreiða eru ótrúleg. Þeir sem hjóla til vinnu minnka líkurnar á hjartasjúkdómum um helming. Andleg heilsa og svefn batnar og stoðkerfið eflist. Þetta er ein áhrifamesta lýðheilsuaðgerð sem sveitarfélögum býðst – og jafnframt ein sú ódýrasta. Ábyrg fjárfesting Fjárfesting í hjóla- og göngustígum skilar margföldum ábata. Í norska bænum Hamar, sem hefur svipaðan íbúafjölda og Hafnarfjörður, var ábati hjólastíga metinn fjórfaldur miðað við kostnaðinn. Mesti íþróttabær Íslands ætti að vera mesti hjólabærinn - en þannig er staðan ekki í dag. Fjárfestingar Hafnarfjarðarbæjar í göngu- og hjólastígum hafa verið í skötulíki árum saman, með þeirri afleiðingu að hjólreiðar standa í stað í Hafnarfirði á meðan fjárfesting annars staðar skilar sér í aukninginni notkun. Þetta er ekki tilviljun – breytingar gerast fyrst þegar til verður samfellt og öruggt hjólanet sem tengir saman mikilvæga áfangastaði í daglegu lífi fólks. Stakir stígar, sem enda jafnvel í runna eða skurði, duga ekki og draga beinlínis úr trausti á kerfinu. Fyrsta skrefið er ekki flókið: að tengja saman skóla, íþróttasvæði og helstu þjónustukjarna með samfelldum og öruggum hjólastígum sem fólk treystir sér til að nota daglega. Hér er Viðreisnar þörf Við viljum gera hjólreiðum hátt undir höfði í bænum okkar fyrir alla íbúa, frá 8 til 80 ára. Það þýðir að 8 ára ungmenni og 80 ára heldri borgari eiga að geta hjólað milli staða með auðveldum hætti og án þess að leggja sig í hættu. Hafnarfjörður framtíðarinnar mun einkennast af miklu fjölda fólks gangandi og hjólandi á alls konar hjólum – þar á meðal rafhjólum og rafhlaupahjólum – þar sem innviðir gera slíkar ferðir bæði einfaldar og öruggar. Besti tíminn til að planta tré var fyrir 20 árum síðan, næst besti tíminn er í dag. Við getum strax byrjað að efla okkar hjólastíga til þess að stytta biðina eftir framtíðinni. Auknar hjólreiðar gagnast öllum í bænum og þurfa að komast á dagskrá stjórnmálanna. Höfundur er sérfræðingur í atvinnu- og borgarþróun og skipar 4. sæti á lista Viðreisnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar