Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Lovísa Arnardóttir skrifar 31. mars 2026 08:43 Árni hefur hefur starfað hjá Marel og síðar JBT Marel frá árinu 2009. Aðsend Árni Sigurjónsson,framkvæmdastjóri hjá JBT Marel ehf., hefur tekið við sem stjórnarformaður Íslandsstofu. hann hefur starfað hjá Marel og síðar JBT Marel frá árinu 2009. Sigríður Mogensen kemur einnig ný inn í stjórn. „
Íslenskt hagkerfi byggir á útflutningi og hlutverk Íslandsstofu er að vinna með öllum útflutningsgreinum að því að auka hann. Á undanförnum árum hefur fjölbreytni í útflutningi aukist og samsetning útflutnings því breyst frá fyrri tíð, sem hefur rennt stoðum undir aukinn stöðugleika í íslenska hagkerfinu. Ég er afar spenntur að taka við sem formaður stjórnar Íslandsstofu á þeim áhugaverðu tímum sem fram undan eru í öllum fjórum stoðum útflutnings; sjávarafurðum, hugverkaiðnaði, ferðaþjónustu og orkusæknum iðnaði. Hjá Íslandsstofu starfar öflugur hópur sem ég hlakka til að vinna með að þeim verkefnum sem fram undan eru,“ er haft eftir Árna í tilkynningu. Þar kemur fram að Árni hafi verið formaður Samtaka iðnaðarins árin 2020 til 2026 og hefur átt sæti í stjórn og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins frá 2016. Árni er stjórnarformaður Reita hf., á sæti í Háskólaráði Háskólans í Reykjavík og hefur setið í fjölda stjórna annarra fyrirtækja og samtaka. Hann lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands og meistaraprófi í fjármála- og félagarétti frá London School of Economics and Political Science (LSE). Sigríður er sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins.Aðsend Sigríður Mogensen tekur einnig sæti í stjórninni samkvæmt tilkynningunni. Hún er sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins og situr í ráðgjafarnefnd EFTA og EES, stjórnum KLAK – Icelandic Startups og Nýsköpunarsjóðsins Kríu. Sigríður er með B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í reikningshaldi og fjármálum frá London School of Economics (LSE). Hún starfaði áður hjá Deutsche Bank í Lundúnum sem og á Viðskiptablaðinu og Stöð 2 og hefur setið í ýmsum stjórnum og nefndum, meðal annars stjórn Júpíters og Gamma og áhættunefnd stjórnar Kviku banka. Samhliða þessum breytingum gengu þær Hildur Árnadóttir, fráfarandi formaður, og Ásthildur Otharsdóttir úr stjórn Íslandsstofu, en þær höfðu báðar setið í stjórninni í átta ár. Stjórnina skipa auk Árna og Sigríðar þau Eva María Þórarinsdóttir Lange, Heiða Kristín Helgadóttir, Helga Árnadóttir (varaformaður), Martin Eyjólfsson og Ægir Páll Friðbertsson.
Auglýsinga- og markaðsmál JBT Marel Vistaskipti Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Innkalla pipar vegna eiturs Neytendur Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira