Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Bílabúð Benna og Ragnheiður Tryggvadóttir 7. apríl 2026 09:28 Cayenne Electric er ótrúleg blanda af notadrjúgum fjölskyldutrukk sem getur kraflað sig upp fjallshlíðar og runnið svo eins og draumur eftir hraðbrautum án þess að við finnum fyrir því. Svo þarf ekki að stinga honum í samband. Hann er fyrsti rafbíllinn þar sem þráðlaus hleðsla er í boði. „Ertu ekki búin að prófa að stíg´ann í botn?“ Spurði sessunautur minn gáttaður þar sem við dóluðum okkur eftir spænskum þjóðvegi. „Þú verður,“ sagði hann. Framundan var bein braut, brú yfir Pantá de Rialb uppistöðulónið svo nú var tækifærið. Ég herti takið um stýrið og stappaði pedalann niður í gólf.
Ég negldist aftur í sætið eins og geimfari tunglskoti og hjartað tók auka slög. Viðbragðið var svakalegt og hélt áfram og áfram, þar til þurfti að bremsa, ég var víst ekki ein á brúnni. Þessi bíll fer frá 0 og upp í 100 á 4.8 sekúndum, örfáar sekúndur í viðbót og við hefðum náð 200 km hraða! Ekki svo slæmt af fimm sæta SUV fjölskyldubíl að vera. Reyndar ekkert venjulegum SUV. Ég sat semsagt í nýjasta útspili Porsche, Cayenne Electric sem fyrirtækið kynnti með pompi og prakt fyrir utan Barcelona á dögunum. Hliðarspor sem reyndist gæfuspor Harðkjarna Porschefólk var víst ekkert yfir sig hrifið þegar Porsche kynnti sinn fyrsta SUV, bensíndrifinn Cayenne, fyrir hátt í aldarfjórðungi. Fannst það lummó og ekki í takt við stefnu Porsche sem byggir á sportbílum og kappaskturstöktum. Það fór þó svo að Cayenne hinn fyrsti sló í gegn og stækkaði kúnnahópinn svo um munaði þar sem allt í einu varð raunhæfur möguleiki fyrir fjölskyldufólk að eiga Porsche í hlaðinu, skutla krökkunum í skólann og koma við í búð eða fara í tjaldferðalög. Fyrsti Cayenne jeppinn er mest seldi bíll Porsche og vilja einhverjir meina að hann hafi skapað þá fjármuni sem gerðu Porsche mögulegt að taka þátt í rafvæðingunni. Harðkjarna Porschefólk setti reyndar aftur upp snúð þegar Porsche hóf rafbílavegferðina. Þar með væri sálin endanlega farin, engin Porsche stemmning í því að þenja hljóðlausa batterísbíla. En þessi splunkunýi Cayenne Electric er engin venjulegur batterísbíll og hljóðlaus er hann ekki, eða þarf ekki að vera það því með einum smelli má kveikja á hressilegum Porsch-drunum. Þær eru auðvitað ekki frá bensínmótor en vá þær virka! Svo er bíllinn með "spoilerum" sem skjóta má út þegar hraðinn kallar á það. Frá 0 og upp í 200 Ekki er hægt að kvarta yfir kraftleysi. Þessi bíll er 300kW eða 442 hestöfl og Turbo útgáfan er 630 kW eða 1156 hestöfl og 1500 Nm tog. Cayenne Electric fer létt með að draga yfir þrjú tonn. Svo verður að taka fram að Turbo er 2.5 sekúndur frá 0 og upp í 100! Kannski ekki bráð nauðsynlegt í fjölskyldu SUV en maður veit aldrei. Á kynningunni var reyndar líka tekið sértaklega fram hvað það tæki bílinn margar sekúndur að komast frá 0 upp í 200, Cayenne Electric 18.4 sekúndur og Túrbóinn ekki nema 7.4! Þó ekki með hjólhýsið í eftirdragi en hér er aldeilis ekki verið að gleyma Porsche-kjarnanum. Fyrir þá sem þurfa einn valkost í viðbót má kannski benda á að S útgáfa bílsins verður kynnt núna í sumar og er hann 666 hestöfl og 3.8 sek í hundraðið. Fyrstur rafbíla með þráðlausri hleðslu Drægnin er hressilega fjölskylduvæn eða allt að 643 km, allt að 808 km í borgarakstri, á meðan Turbóinn fer 624 km. Drægnin segir þó ekki allt því að hleðslutíminn á nýjum Cayenne er einstaklega hraður en hann fer frá 10% upp í 80% undir 16 mínútum. Og svo rúsínan í pylsuendanum, Cayenne Electric er fyrsti rafbíllinn þar sem þráðlaus hleðsla er í boði. Heimahleðslustöðin er semsagt plata sem bílnum er lagt yfir og hann byrjar að hlaða sig sjálfkrafa með 11 kw afli. PPE platform fyrir nýjan rafbílakafla Porsche Dirk Britzen forstöðumaður Cayenne Electric línunnar segir markið hafa verið sett hátt og engar málamiðlanir hafi komið til greina þegar hanna átti rafbíl á annað borð. Porsche ákvað að taka rafbílavæðinguna með trompi og hannaði sinn eigin platform. PPE (Premium Platform Electric) er sem sagt hannaður frá grunni fyrir rafbíla en er ekki breytt bensínbílaplatform. Helsta áskorunin segir Dirk hafa legið í hönnun rafhlöðunnar, 800 volta háspennurafhlöðu með heildarorku upp á 113 kWh. „Stærsta áskorunin var að gera rafhlöðuna nógu netta og fyrirferðarlitla en samt nógu öfluga og þá var kælikerfið einnig stór áskorun. Við vildum geta kælt rafhlöðuna nógu hratt svo hægt væri að keyra lengi á miklu afli.“ „Rafhlaðan samanstendur af sex einingum með samtals 192 rafhlöðufrumum og er kæld með vökva á báðum hliðum og hver eining er einnig kæld sérstaklega. Við hemlun getur bíllinn endurheimt orku allt að 600 kW. Ég er gífurlega stoltur af því að hafa náð að gera svona góðan bíl, rúmgóðan og praktískan en sem skilar þeirri akstursdýnamík sem Porsche vill standa fyrir," segir Dirk. Loftfjöðrun pumpar bílinn upp um marga sentimetra Þegar ég botnkeyrði bílinn á brúnni var ég að koma til baka úr utanvega akstri á þar til gerðri braut með sérfræðing mér við hlið. Þar sýndi bíllinn á sér áhugaverða hlið en Cayenne Electric er búinn rafstýrðum dempurum á hverju hjóli og loftfjöðrun og á Off Road stillingu pumpar bíllinn sig upp í um 25 sentimetra veghæð. Þannig rúlluðum við niður 26% halla á holóttum malarvegi, snarbeygðum yfir hryggi með tvö hjól á lofti, spændum upp lóðrétta stabba svo ekkert sá í nema himininn og horfa þurfti í myndavélina til að sjá hvert vegurinn lá. Hér var ekki endilega farið hratt yfir, ekki allsstaðar en dempararnir stóðu sannarlega fyrir sínu. Bíllinn rúllaði yfir holur og grjót án þess að ég fyndi fyrir því í sætinu. Mér varð hugsað til íslenskra malarvega, og tja, íslenskra vega yfir höfuð. Klippa: Splunkunýr rafbíll frá Porsche Cayenne Electric Eftir Off Road hringinn lá beint við að sýna hvernig þessi SUV plummar sig í rallýbraut, en ekki hvað? Ég fékk reyndar ekki að sitja undir stýri, alvöru rallýkall sá um það og við farþegarnir spenntum bara beltin. Tveggja og hálfs tonna fjölskyldubíllinn æddi gegnum rallýbeygjurnar í moldarský og með hljóðdrunurnar í hvínandi botni. Þetta var hrikalega gaman og reyndar merkilega þægilegt, bíllinn liggur nefnilega eins og pönnukaka í brautinni. Það fann ég líka glögglega þegar ég keyrði eftir þjóðvegunum eftir að hafa náð mér niður eftir adrenalínkikkið, ekkert body roll í beygjum. Cayenne Electric hefur Normal, Sport, Sport Plus, Comfort og Off Road akstursstillingar sem auðvelt er að velja með hnapp í stýrinu og er fyrsti SUV Porsche með Comfort. Comfort er mín uppáhalds, hún skilaði ótrúlegri mýkt svo ég sveif áfram í yfirmáta þægindum. Sport og Sport Plus og skiluðu stífari fjöðrun á hlykkjóttum vegi og þá var mjög gaman gefa dálítið í. Það er því hægt að stilla Porsche Cayenne sem drifgóðan og öflugan jeppa yfir í afar sprækan sportbíl og allt þar á milli. Lúxusrými eykur á upplifunina Innréttingin er flott og gerði mikið fyrir Porsche upplifunina. Sveigður OLED-miðskjár setur mikinn svip á innrýmið, ég hef ekki séð þessa útfærslu áður. Svo hvílir úlnliðurinn þægilega á púða þegar ég pikka á skjáinn. Stýrikerfið styður streymi, leikjaspilun, forrit og raddstýringu með gervigreind. Sérstakur skjár er fyrir farþegann frammí sem hægt er að vinna á án þess að það trufli bílstjórann. Hér er allt svo rúmgott, leðurklætt og mjúkt. Rafstýrð sætin er hægt er að aðlaga nákvæmlega eftir þörfum. Þétta hliðarpúðana vel að líkamanum, lyfta undir hné og auka stuðning við mjóbakið svo eitthvað sé nefnt. Þá eru aftursætin líka rafdrifin og hægt að færa þau fram til að auka farangursrýmið eða aftur svo farþegarnir fá meira fótapláss. Enda kemst fullorðinn einstaklingur vel fyrir í aftursætinu. Þakglugginn er stór og hægt að stilla gegnsæið á honum á nokkra mismunandi vegu. Hægt er að stilla LED lýsinguna að innan eftir stemmningunni í bílnum. Ekki það að sólin skein svo skært þennan prufutúr að ég þurfti ekki annað „mood.“ en á dimmum íslenskum vetrardögum gerir hún mikið. Ég rak augun í eitt dálítið skemmtilegt smáatriði sem er einkennandi fyrir Porsche, Start-takkinn er vinstra megin við stýrið. Þannig hannaði Porsche það í bílum sínum fyrir Le Mans kappaksturinn, svo bílstjórinn gæti startað bílnum með vinstri og sett í gír með hægri um leið og sparað þannig dýrmætar sekúndur. Sameinar sport, þægindi og notagildi Hvernig er svo að keyra þennan bíl? Draumur í einu orði sagt. Ég prófaði báðar útgáfur. Cayenne Electric er kannski meira fyrir daglegt líf, Túrbóinn fyrir þau sem vilja Porsche tryllinginn beint í æð. Þessi bíll er ótrúleg blanda af notadrjúgum fjölskyldutrukk sem getur kraflað sig upp fjallshlíðar og runnið svo eins og draumur eftir hraðbrautum án þess að við finnum fyrir því. Fullkominn fyrir íslenskar aðstæður Hann er fullkominn fyrir Ísland þar sem aðstæður geta spannað allt þetta nánast á einum sunnudagsrúnti, okkur vantar bara hraðbrautirnar til að stappa pedalann stöku sinnum niður í gólf. Hann er ekki aðeins einn sá tæknilega fullkomnasti rafbíll á markaðnum heldur sameinar Cayenne Electric sportlegan akstur, þægindi og notagildi og sýnir svo sannarlega að rafvæðing þessa rótgróna sport- og kappaksturs framleiðanda þarf ekki að þýða málamiðlanir. Verðið hleypur eins og gefur að skilja á nokkrum millum en kemur samt á óvart miðað við margt frá þessum margrómaða framleiðanda eða frá 16.950.000 krónum upp í 26.450.000 krónur. Svo er meira að segja hægt að sérsníða hann eftir eigin höfði því boðið er upp á fjölbreytta liti, innréttingar, felgur og stóran aukapakka. Fyrstu bílarnir koma til Íslands með sumrinu og fyrir áhugasama er hægt að sjá meira um bílinn hér.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Viðskipti innlent Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl