„Hann lýgur bara til að komast undan þessu“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. mars 2026 09:50 Einar Jónsson er ósáttur við framkomu eftirlitsmanns HSÍ. vísir Einar Jónsson, þjálfari Fram í Olís deildinni, gefur lítið fyrir eftiráskýringar eftirlitsmanns HSÍ, sem bannaði stuðningsmönnum Fram að færa sig í önnur sæti á leik liðsins við FH í Kaplakrika.
Hlynur Leifsson var eftirlitsmaður HSÍ á leiknum og neitaði að hefja seinni hálfleikinn fyrr en stuðningsmenn hlýddu. Hlynur bað þá um að setjast aftur í sömu sæti og þeir höfðu setið í fyrri hálfleik, en stuðningsmenn Fram höfðu fært sig yfir í hinn hluta stúkunnar. Hlynur sagði í samtali við Vísi í gær að stuðningsmennirnir hefðu verið á ólöglegu svæði. Myndbandsupptökur frá leiknum sýna hins vegar og sanna að stuðningsmennirnir voru ekki á því svæði sem eftirlitsmaðurinn Hlynur vildi meina. Vísir hafði því samband við Einar Jónsson: „Það er bara algjört kjaftæði. Það er hægt að sjá hvar þeir voru. Hann lýgur bara til að komast undan þessu. Það er hægt að sjá þetta á myndbandi, þeir eru víðs fjarri ritaraborðinu þegar þeir eru reknir í burtu. Þeir sitja þarna í fjórðu, fimmtu röð, einhvers staðar við endann á varamannabekk FH. Hann á ekkert að komast upp með að ljúga bara til að redda sér.“ Einar segir líka allt annað hljóð í rökstuðningi Hlyns í gær miðað við það sem hann sagði í hálfleik. Þar hafi Hlynur vitnað í reglur sem eru ekki til. „Ég veit að það er ólöglegt svæði að vera með trommur við skiptisvæði eða fyrir aftan tímavarðaborð. En rökin sem hann færði fyrir því að þeir mættu ekki vera þarna voru þau að þeir mættu ekki færa sig á milli hálfleika. Það er það sem hann segir og ég bað hann um að sýna mér þær reglur. Hann gat náttúrulega ekki vitnað í neinar reglur.“ Þá vill Einar einnig meina að reglan sem Hlynur vitnaði í eftir á, í skriflegu svari til Vísis, hafi ekki verið gild í þessu tilfelli í Kaplakrika. „Salnum er skipt þannig upp að áhorfendur Fram í gestastúkunni eru fyrir aftan varamannabekki og tímavarðaborð. Svo ertu með FH stuðningsmenn hinumegin. Þar með fellur þessi regla um sjálft sig. Vegna þess að þá eru þeir að mismuna áhorfendum. FH getur verið með trommur og sína stuðningsmannasveit hvar sem er, á meðan stuðningsmönnum Fram eru sett takmörk. Þannig að reglan er ekki einu sinni gild í þessu tilfelli sem hann vitnar í.“ Veit ekki hvaðan þetta kemur Framarar hafa verið mjög ósáttir við þessa framkomu við stuðningsmenn og Einar veltir því fyrir sér hver kveikjan að þessu máli hafi orðið. „Þetta er bara lygi og léleg útgönguleið úr þessu máli. Þetta er ömurleg framkoma gagnvart stuðningsmönnum okkar og að einhverju leiti velti ég bara fyrir mér hvaðan þetta kemur. Eru það FH-ingar eða er þetta hann sem tekur upp á þessu bara sjálfum sér að koma svona fram við okkar stuðningsmenn?... Ég talaði við Aron [Pálmarsson] og hann skildi hvorki upp né niður í þessu, þannig að ég veit bara ekki hvaðan þetta kemur.“ Lambhagahöllin í Úlfarsárdal, ekki Norður-Kóreu Liðin mætast aftur á mánudag og Íslandsmeistarar Fram ljúka sínu tímabili ef þeir tapa. En verður stuðningsmönnum FH skipað að sitja í sömu sætum allan leikinn í Lambhagahöllinni? „Nei, nei, nei. Við viljum bara hafa sem mesta stemningu og læti. FH á frábæra stuðningsmenn og þeim er velkomið að sitja bara þar sem þeir vilja inni á sínu svæði… Þetta er ekki Norður-Kórea. Mönnum er frjálst að sitja bara þar sem þeir vilja í sinni stúku.“
Olís-deild karla HSÍ Fram FH Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira