Gerir hlé á árásum á Íran Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 23. mars 2026 13:06 Donald Trump gerir hlé á árásunum. EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að gera hlé á árásunum sínum á Íran í kjölfar samningaviðræðna. Hann tilkynnir þetta með færslu á samfélagsmiðlum. Íranir segjast ekki hafa tekið þátt í neinum samningaviðræðum. „
ÞAÐ ER MÉR ÁNÆGJA AÐ TILKYNNA AÐ BNADARÍKIN OG ÍRAN HAFA, UNDANFARNA TVÖ DAGA, ÁTT MJÖG GÓÐAR OG ÁRANGURSRÍKAR VIÐRÆÐUR VARÐANDI ALGERA LAUSN Á ÁTÖKUNUM Í MIÐ-AUSTURLÖNDUNUM,“ skrifar Trump á Truth Social. Vert er að taka fram að hann skrifaði færsluna sjálfur í hástöfum. „BYGGT Á TÓNI OG ANDA ÞESSARA ÍTARLEGU, NÁKVÆMU OG UPPBYGGILEGU VIÐRÆÐNA, SEM MUNU HALDA ÁFRAM ALLA VIKUNA, HEF ÉG GEFIÐ STRÍÐSMÁLARÁÐUNEYTINU [varnarmálaráðuneytinu] FYRIRMÆLI UM AÐ FRESTA ÖLLUM HERNAÐRÁRÁSUM Á ÍRÖNSK ORKUVERK OG ORKUINNVIÐI Í FIMM DAGA.“ Þetta hlé er gert með þeim fyrirvara að árangur náist á fundum ríkjanna. Hins vegar hefur Reuters eftir írönskum miðli að Íranir hafi hvorki átt í neinum beinum samskiptum við Trump né í gegnum milligöngumenn. Utanríkisráðuneyti Írans hefur gefið út yfirlýsingu þar sem þeir segjast ekki hafa tekið þátt í neinum samningaviðræðum. „Við afneitum því sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt varðandi samningaviðræður milli Bandaríkjanna og Íran,“ segir í yfirlýsingunni. Á laugardagskvöld hótaði Trump að Bandaríkjamenn myndu ráðast á írönsk orkuvinnviði ef þau myndi ekki opna fyrir umferð allra um Hormússundið. Íranir svöruðu fyrir sig og sögðust ætla að ráðast á orkuinnviði Ísraels og þau sem sjá bandarískum herstöðvum fyrir orku. Íranski miðillinn segir að Trump hafi ákveðið að gera hlé á árusunum eftir að hafa heyrt af hótun Írana. Ísraelar virðast ekki ætla að gera hlé en þeir gerðu árásir á Tehran, höfuðborg Írans fyrr í dag samkvæmt umfjöllun BBC. Fréttin var uppfærð með tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Írana.
Íran Bandaríkin Ísrael Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Tengdar fréttir „Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Scott Bessent fjármálaráðherra Bandaríkjanna sagði í viðtali hjá NBC fyrr í dag að stundum þyrfti að auka spennuna til að draga úr henni. 22. mars 2026 16:52 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
„Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Scott Bessent fjármálaráðherra Bandaríkjanna sagði í viðtali hjá NBC fyrr í dag að stundum þyrfti að auka spennuna til að draga úr henni. 22. mars 2026 16:52