Griezmann að flytja til Flórída Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. mars 2026 15:01 Antoine Griezmann mun ljúka ferli sínum hjá Atlético Madrid sem markahæsti leikmaður í sögu félagsins. Getty/Harry Murphy Antoine Griezmann er að ganga frá félagaskiptum til Orlando City í MLS deildinni í Bandaríkjunum en hann fer til félagsins í sumar frá Atlético Madrid á Spáni.
Griezmann hefur fengið leyfi frá Atlético til að ferðast til Flórída í vikunni og ganga frá samningi. Hann mun þó spila áfram með Atlético það sem eftir lifir tímabils. Honum bauðst að ganga frá skiptunum strax, og reyndar hefur Orlando viljað fá hann alveg síðan í janúar, en Griezmann vildi klára tímabilið með Atlético og freista þess að vinna spænska konungsbikarinn eða mögulega Meistaradeildina. Griezmann er markahæsti leikmaður í sögu Atlético og þrátt fyrir að vera orðinn 35 ára gamall spilar hann enn stórt hlutverk hjá liðinu, þó Diego Simeone noti hann oftast sem varamann. Félagaskiptin til Orlando hafa lengi legið í loftinu en Marca greinir frá því að bráðum verði allt frágengið. Griezmann mun svo flytja til Flórída í sumar og gæti nýtt tímann á meðan HM stendur yfir en hann hætti með franska landsliðinu árið 2024. Orlando City hefur áður fengið stórstjörnur úr evrópska fótboltanum til félagsins. Þegar félagið var stofnað árið 2015 var hinn brasilíski Kaká fyrirliði fyrstu þrjú tímabilin. Portúgalski vængmaðurinn Nani spilaði svo með liðinu frá 2019-21.
Spænski boltinn Bandaríski fótboltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjá meira