Atvinnurekendur farnir að nota gervigreind til að sía umsóknarflóðið Sunna Sæmundsdóttir skrifar 21. mars 2026 16:01 Kristján Freyr Kristjánsson fjallar um hvernig gervigreind er notuð beggja vegna borðsins í atvinnumálum. Gervigreind spilar sífellt stærra hlutverk í ráðningarferli fyrirtækja. Atvinnurekendum berast allt að hundraðfalt fleiri umsóknir en áður þar sem auðveldara er orðið að smíða þær og senda út með aðstoð tækninnar.
Gervigreind spilar sífellt stærra hlutverk í flestum kimum atvinnulífsins og eru ráðningaferli fyrirtækja þar ekki undanskilin. Kristján Freyr Kristjánsson, framkvæmdastjóri 50skills, segir umsækjendur nýta hana í síauknum mæli á ýmsan hátt. „Atvinnurekendur sjá jafnvel tífalt eða fimmtíufalt eða hundraðfalt fleiri umsóknir á sumum stöðum. Það er auðvitað að gerast meðal annars af því að tíminn sem tekur til þess að búa til ferilskrá og kynningarbréf, eða besta ferilskrá og kynningarbréf að atvinnuumsókninni sem um ræðir, tekur bara nokkrar sekúndur eða mínútur fyrir umsækjendur. Það eru oft líka fleiri umsóknir frá stöðum sem eiga jafnvel ekkert erindi, jafnvel bara fólk sem býr annars staðar í heiminum og var ekkert endilega að sjá fyrir sér að flytja til Íslands, heldur er bara verið að nota sjálfvirka tækni til að sækja um störf alls staðar og mjög víða að.“ Aukinn fjöldi umsókna skapar á sama tíma áskoranir fyrir atvinnurekendur sem þurfa að fara í gegnum þær og er gervigreindin í auknum mæli einnig notuð á hinum endanum. Hún er jafnvel notuð til að skrifa starfslýsingar, spurningar fyrir atvinnuviðtöl og til þess að sía út umsækjendur. „Til dæmis eru margir að auglýsa störf þar sem þú þarft atvinnuleyfi og það er að aukast töluvert af umsóknum frá fólki sem hefur ekki atvinnuleyfi, jafnvel einhver gervigreindarforrit í útlöndum sem sækja bara sjálfvirkt um öll störf sem eru opin. Þá getur verið gagnlegt að til dæmis setja einhverjar síur sem skoða bara hvort viðkomandi – miðað við umsóknina – segist vera með atvinnuleyfi eða ekki og ef ekki þá kemst umsóknin ekki áfram.“ Kristján segir að mörgu að huga á þessum tímamótum í tækninni og bendir á að viðkvæmar persónuupplýsingar geta falist í umsóknum. „Það eru bæði auðvitað til reglur og löggjöf í kringum hvað má og hvað má ekki í þessu. Hvaða gervigreind er verið að nýta? Er þetta gervigreind sem er hýst í Evrópu eða annars staðar í útlöndum?“ Þá sagði hann skipta máli hvernig tegund af gervigreind um væri að ræða. Þannig skipti máli hvort upplýsingarnar bærust til gervigreindarforrits, væru notaðar til að þjálfa gervigreindarmódelið eða hvort upplýsingarnar hyrfu eftir notkun. „Í mínum huga er það alveg augljóst að gervigreind mun verða notuð mun meira á komandi misserum og það er engin leið til að setja, eins og maður segir, andann aftur í flöskuna. Vinnustaðir munu nýta sér þessa tækni til að vera skilvirkari á öllum sviðum en svo er auðvitað mikilvægt að ef þeir ákveða að gera það að fylgja reglum og lögum og hafa skýrt hjá sér hvað er í lagi að gera og hvað er ekki í lagi að gera.“
Tækni Atvinnurekendur Gervigreind Vinnumarkaður Tengdar fréttir „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ „Nú gengur allt út á að allir eigi að besta allt og skilvirknin eigi að ná hámarki,“ segir Rúna Magnúsdóttir, leiðtogamarkþjálfi og markaðs- og kynningastjóri SVÞ, í samtali um atvinnulífið og gervigreindina. 19. mars 2026 07:03 Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Stemningin í kringum gervigreindina fer vaxandi. Enda bætist sífellt í hóp notenda. Sem nú nýta hana fyrir flest; að gúggla er orðið gamaldags! 16. mars 2026 07:00 Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Netflix hefur fest kaup á fyrirtækinu InterPositive, kvikmyndafyrirtæki stofnað af Hollywood-leikaranum Ben Affleck. Fyrirtækið framleiðir gervigreindartól fyrir kvikmyndagerð. 8. mars 2026 16:39 Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira
„Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ „Nú gengur allt út á að allir eigi að besta allt og skilvirknin eigi að ná hámarki,“ segir Rúna Magnúsdóttir, leiðtogamarkþjálfi og markaðs- og kynningastjóri SVÞ, í samtali um atvinnulífið og gervigreindina. 19. mars 2026 07:03
Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Stemningin í kringum gervigreindina fer vaxandi. Enda bætist sífellt í hóp notenda. Sem nú nýta hana fyrir flest; að gúggla er orðið gamaldags! 16. mars 2026 07:00
Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Netflix hefur fest kaup á fyrirtækinu InterPositive, kvikmyndafyrirtæki stofnað af Hollywood-leikaranum Ben Affleck. Fyrirtækið framleiðir gervigreindartól fyrir kvikmyndagerð. 8. mars 2026 16:39