Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Sindri Sverrisson skrifar 20. mars 2026 07:31 Þorsteinn Halldórsson þarf að fá inn konu sem aðstoðarþjálfara ætli Ísland að vera með á HM 2027 en England þarf engu að breyta með þrefalda Evrópumeistarann Sarinu Wiegman sem aðalþjálfara. Getty/Naomi Baker Knattspyrnusamband Íslands mun þurfa að gera breytingu á þjálfarateymi A-landsliðs kvenna til að Ísland megi taka þátt á HM 2027 í Brasilíu, eftir að FIFA ákvað að setja á kynjakvóta fyrir öll mót kvenna á vegum sambandsins.
Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, tilkynnti í gær að nú yrði gerð sú krafa að hið minnsta ein kona yrði í þjálfarateymi hvers liðs í kvennamótum sambandsins. Þessi ákvörðun nær einnig til yngri landsliða kvenna sem og til hins nýja HM félagsliða sem fór fram í fyrsta sinn í vetur. Hjá hverju liði þurfa sem sagt að vera að minnsta kosti tvær konur í starfsliðinu og þar af að lágmarki einn kvenkyns aðal- eða aðstoðarþjálfari. Íslenska A-landsliðið er nú í undankeppni fyrir HM sem fram fer í Brasilíu sumarið 2027, með Þorstein Halldórsson sem aðalþjálfara og Ólaf Kristjánsson sem aðstoðarþjálfara. Því er ljóst að bæta þyrfti konu í teymið til þess að Ísland mætti spila á HM. „Ekki nógu margar konur þjálfarar“ Sömuleiðis þarf að tryggja að kona sé í þjálfarateymi yngri landsliða í mótum á vegum FIFA í framtíðinni en þessar breytingar taka gildi á HM U17 og HM U20 landsliða í ár. „Það eru einfaldlega ekki nógu margar konur þjálfarar í dag,“ sagði Jill Ellis, yfirmaður knattspyrnumála hjá FIFA. „Við verðum að hraða breytingunum með greiðari leiðum, fjölgun tækifæra og með því að gera konur sýnilegri á hliðarlínunni,“ sagði Ellis. Vonir standa til þess að breytingarnar muni fjölga kvenþjálfurum hratt en sem dæmi þá voru kvenkyns aðalþjálfarar á HM 2023 aðeins 12 af 32. Fyrirmyndirnar eru þó sannarlega til staðar og eru konur núverandi aðalþjálfarar ríkjandi Evrópumeistara Englands og ríkjandi heimsmeistara Spánar – liðanna sem Ísland spilaði við í fyrstu leikjunum í undankeppni HM.
Landslið kvenna í fótbolta FIFA Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira