Hörð gagnrýni þegar tenging bóta við launavísitölu var samþykkt Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Smári Jökull Jónsson skrifa 19. mars 2026 14:30 Ragnar Þór Ingólfsson tók við embætti félags- og húsnæðismálaráðherra í byrjun janúar. Vísir/Vilhelm Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu launavísitölu við almannatryggingar var samþykkt á Alþingi í dag. Frumvarpið sætti töluverðri gagnrýni af þingmönnum minnihlutans.
Deilt hefur verið um hvaða áhrif lagabreytingin mun hafa á ríkisreksturinn en þingmenn minnihlutans, verkalýðsforkólfar og hinir ýmsu sérfræðingar hafa keppst við að vara við áhrifum þess en talað fyrir daufum eyrum ríkisstjórnarinnar. Gagnrýnin hefur meðal annars snúist að svokölluðum tvöföldum lás sem gagnrýnendur segja það fela í sér og gæti að þeirra mati þýtt að bætur hækki meira en laun. Þá myndi öfugur hvati leiða til fjölgunar öryrkja. Við atkvæðagreiðsluna í þingsal gerðu fjölmargir þingmenn grein fyrir atkvæði sínu. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, sagði opinberast hversu mikið ríkisstjórnin þyrfti að hafa fyrir því að koma einföldum réttlætismálum í lög. „Á við það að stöðva kjaragliðnun á milli hópa en ekki bara í þessum málum heldur fleiri málum, eins og þegar kemur að frítekjumarki og fleiri málum sem við höfum þurft að berja hér í gegn,“ sagði Ragnar. Þingmenn ríkisstjórnarflokkanna greiddu atkvæði með frumvarpinu og þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins gegn því. Þingmenn Framsóknar sátu hjá. Sagði dapurlegt að hlusta á umræðuna Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði að með ólíkindum væri að standa í lok málsins og hlusta á umræðuna og sagði málið illa undirbúið. „Það hefur nú verið hálfdapurt að hlýða á þessa umræðu, hæstvirtir ráðherrar eru að úthrópa þingmenn og leggja þeim orð í munn í sumum tilfellum. Eins og umsagnaraðilar hafa hver á fætur öðrum, helstu sérfræðingar landsins, bent á á þessum mánuðum að það ætti að fara frekar í að greina þá hópa sem á mestri aðstoð þurfa að halda og hvaða hópar það eru mögulega umfram þá sem allra verst standa.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði málið koma sér illa fyrir flestalla til lengri tíma litið og sérfræðingar hafi gert sitt besta til að koma vitinu fyrir ríkisstjórnina. „Þetta mál mun ekki hjálpa öryrkjum og eldri borgurum til lengri tíma litið. Það það getur fest menn í fátæktargildru, fátæktargildru þar sem að fólk hefur ekki tækifæri til að komast aftur út á vinnumarkaðinn og skapa sér auknar tekjur,“ sagði hann. Hrópaði af gleði Nafni hans, Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, sagði málið snúast um eina spurningu, hvort taka ætti á kjaragliðnun eða ekki. „Ekki svona, heldur seinna. Það er ekki tími fyrir ykkur núna. Ykkar tími er ekki kominn og ykkar tími mun kannski aldrei koma. Kæru öryrkjar, það er pólitíkin sem er að teiknast hérna upp hjá hluta þingheims. Öðrum ekki, þar á meðal mér. Ég segi já.“ Inga Sæland var upphaflega talsmaður frumvarpsins þegar hún gegndi embætti félags- og húsnæðismálaráðherra en síðan tók Ragnar Þór Ingólfsson við eftir að Inga settist í stól mennta- og barnamálaráðherra. Þegar forseti þingsins tilkynnti að frumvarpið hefði verið samþykkt hrópaði Inga yfir salinn.
Alþingi Tenging almannatrygginga við launavísitölu Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar gefa lítið fyrir orð mennta- og barnamálaráðherra sem svaraði gagnrýni um frumvarp félagsmálaráðherra á Alþingi í dag. Ráðherrann sagðist vera kominn með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“. 5. mars 2026 13:41 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar gefa lítið fyrir orð mennta- og barnamálaráðherra sem svaraði gagnrýni um frumvarp félagsmálaráðherra á Alþingi í dag. Ráðherrann sagðist vera kominn með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“. 5. mars 2026 13:41