Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Sindri Sverrisson skrifar 19. mars 2026 14:03 Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín gengur til liðs við Thüringer í sumar. Thüringer HC Eitt af bestu liðum þýsku 1. deildarinnar í handbolta hefur samið við landsliðskonuna Ölfu Brá Oddsdóttur Hagalín og fagnar því að hafa fengið slíkan toppvarnarmann.
Alfa vakti athygli forráðamanna Thüringer með framgöngu sinn í vörn Íslands á HM í handbolta í vetur, á sínu fyrsta stórmóti. Þessi tvítuga, 180 sentímetra skytta fer til Thüringer í sumar frá Fram þar sem hún hefur spilað frá árinu 2023. Hún kveðst afar spennt enda Thüringer í 4. sæti þýsku deildarinnar og nýbúið að spila úrslitahelgina í þýska bikarnum, þar sem liðið endaði þó í 4. sæti. „Ég er gríðarlega spennt fyrir því að koma til Thüringer HC. Þetta er metnaðarfullt og virt félag, og ég tel að þetta sé hárréttur staður fyrir mig. Ég hlakka til næsta kafla og mun leggja allt í sölurnar fyrir liðið,“ sagði Alfa í tilkynningu á heimasíðu félagsins. Herbert Müller, þjálfari Thüringer, er himinlifandi með að fá Ölfu og telur að þar með sé leikmannahópurinn klár fyrir næstu leiktíð. „Til þess að klára að fullmóta hópinn fyrir nýja leiktíð þá vantaði okkur toppvarnarmann. Það var þá sem Alfa vakti athygli okkar á síðasta heimsmeistaramóti. Hún er aðeins tvítug en hefur gríðarlega mikla möguleika til að þróast og er þegar orðin leiðtogi og sterkur hlekkur í vörn Íslands. Hún var ansi uppnuminn vegna möguleikans á að koma til THC og ég er sannfærður um að hún geri frábæra hluti með liðinu,“ sagði Müller.
Þýski handboltinn Fram Olís-deild kvenna Mest lesið Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Enski boltinn Dagskráin í dag: Stjarnan með sóp á Króknum og Arsenal slæst við Atlético Sport Lygileg níu marka veisla í París Fótbolti Fleiri fréttir Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Sjá meira