Lögreglustöðinni verði lokað verði húsnæðið ekki lagað Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. mars 2026 13:06 Inngangurinn að lögreglustöðinni var áður líkt og hér er á myndinni en er núna fyrir aftan húsið. Vísir/Anton Brink Stjórn Landssambands lögreglumanna harmar alvarlega stöðu í húsnæðis- og aðstöðumálum lögreglunnar á Vestfjörðum. Lögreglustöðin á Ísafirði sé í algjörum ólestri og sé ekki ráðist í endurbætur á næstu vikum verði starfsaðstöðunni lokað. „
Húsnæðis- og aðstöðumál lögreglumanna á Ísafirði hafa verið í algerum ólestri mörg undanfarin ár og þrátt fyrir ítrekuð afskipti, úttektir og skýrslur Vinnueftirlitsins og stanslausar ábendingar embættisins og starfsmanna þess um meðal annars rakaskemmdir og myglu,“ segir í ályktun stjórnar Landssambands lögreglumanna. Að auki myglunnar er einnig ófullnægjandi loftræsting í vinnurýmum lögreglustöðvarinnar og loftræstikerfið að auki ótengt. Þá er ófullnægjandi lýsing á lögreglustöðinni, vatnsleki í veggjum, hita- og rakastig á vinnustöðvum í ólagi, búnings- og salernisaðstaðan óboðleg og brunavarnarkerfið aftengt. Stjórnin telur að augljóslega hafi nauðsynlegu og eðlilegu viðhaldi ekki verið sinnt í lengri tíma og hefur það slæm áhrif á starfandi lögreglumenn. „Stjórn Landssambands lögreglumanna harmar sinnuleysi yfirvalda í nauðsynlegum úrbótum í húsnæðis- og aðstöðumálum lögreglustöðvar á Ísafirði og krefst tafalausra aðgerða þeirra sem fara með fasteignamál ríkisins að þessu leyti. Ljóst er að í algert óefni er komið og aðgerðir þola enga bið,“ segir í ályktuninni. Hún segir að verði ekki brugðist við „með skýrum og ótvíræðum hætti“ á næstunni þurfi að loka lögreglustöðinni á grundvelli laga. Vísað er í lög um vinnuvernd, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og um húsnæði vinnustaða. „Núverandi aðbúnaður og starfsaðstaða lögreglumanna á Ísafirði er með öllu óboðlegt ástand og gerir erfitt um vik með störf.“
Lögreglan Ísafjarðarbær Mygla Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira