Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Valur Páll Eiríksson skrifar 19. mars 2026 11:33 Haukur fékk einn á kjammann um síðustu helgi en er klár í slaginn. Vísir/Bjarni Haukur Þrastarson kom vígalegur til móts við landslið karla í handbolta fyrir komandi leiki við Svía eftir harða baráttu í leik Rhein-Neckar Löwen og Eisenach á föstudaginn var.
Haukur skartaði vænasta glóðarauga í vikunni eftir að hafa verið laminn í andlitið af varnarmanni Eisenach á föstudaginn var. „Þetta var smá barningur þarna á föstudaginn í deildinni en þetta er ekkert alvarlegt,“ segir Haukur léttur. Hann skoraði þrjú mörk og lagði upp sex í svekkjandi 29-29 jafntefli. Klippa: Haukur klár þrátt fyrir myndarlegt glóðarauga Haukur er hins vegar í toppstandi og hefur spilað afar vel með Löwen að undanförnu. „Standið er bara gott. Ég var í smá brasi með hnéð eftir mót en ég er búinn að ná mér að fullu af því og hef verið á góðu skriði. Ég er í toppstandi,“ segir Haukur sem tók smá tíma í að ná sér eftir mótið í janúar. „Það er alltaf smá áskorun að koma sér af stað eftir svona langa törn. Eins og allir vita er þetta krefjandi, langt og strangt mót og spilað þétt og allt þetta. Allir eru aðeins lemstraðir eftir svoleiðis törn en núna er maður kominn í toppstand,“ segir Haukur. Gott að koma á Selfoss Vegna þess að Haukur spilaði á föstudeginum síðasta gat hann komið snemma til landsins og notið með fjölskyldunni, á meðan aðrir spiluðu á sunnudegi og mættu beint í æfingar. Honum þótti gott að geta kíkt á Selfoss um síðustu helgi. „Ég kom á laugardaginn svo ég fékk helgina í smá hvíld. Ég kíkti á Selfoss og hitti fjölskylduna og svona. Það var mjög ljúft að fá tvo daga,“ Heimsklassalið í heimsókn Haukur fagnar því að fá heimaleiki við stórþjóð. Spennan er mikil í hópnum fyrir leikjunum tveimur fyrir fullri höll. „Það er gott að fá heimsklassalið fyrir framan okkar fólk. Það er alltaf það besta sem við gerum, að spila heima, fyrir framan fólkið okkar. Það verður geggjað,“ segir Haukur sem segir alla ákveðna í því að nýta tímann og leikina vel upp á framhaldið að gera. „Eins og alltaf í þessum landsliðsbolta er lítill tími sem gefst. Þó þetta séu æfingaleikir lítum við samt á það sem alvöru leiki og glugga sem þarf að nýta vel. Það gefst ekki mikill tími í þetta yfirhöfuð, svo allar æfingar og þessir leikir eru mikilvægir,“ segir Haukur. Viðtalið má sjá í spilaranum. Ísland og Svíþjóð mætast klukkan 19:30 í kvöld. Leikurinn fer fram á Hlíðarenda og verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Landslið karla í handbolta Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Fótbolti „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Serena Williams fagnaði sigri í endurkomunni: „Ég var stressuð“ Sport Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Fótbolti „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira