Farsinn framlengist: Senegal áfrýjar til Alþjóðadómstólsins Valur Páll Eiríksson skrifar 18. mars 2026 09:33 Pape Thiaw skipar leikmönnum sínum af velli í úrslitaleiknum afdrifaríka. Ulrik Pedersen/NurPhoto via Getty Images Stjórnendur hjá senegalska knattspyrnusambandinu eru ekki parsáttir við þá ákvörðun Knattspyrnusambands Afríku í gærkvöld að svipta Senegal Afríkutitlinum frá því í janúar. Þeir hyggjast áfrýja til Alþjóðaíþróttadómstólsins, CAS.
Senegal vann 1-0 sigur á Marokkó í úrslitaleik keppninnar þann 18. janúar síðastliðinn eftir skrautlegan leik. Staðan var markalaus þegar Marokkó var afhent vítaspyrna í uppbótartíma eftir endurskoðun myndbandsdómara. Senegölum þótti dómurinn strangur og allt sauð upp úr. Pape Thiaw, þjálfari senegalska liðsins, skipaði leikmönnum að fara inn í klefa í mótmælaskyni. Eftir 17 mínútna töf klúðraðist vítaspyrnan hins vegar og Senegal vann að endingu 1-0 sigur eftir framlengingu. Sú niðurstaða var umdeild á þeim tíma, þar sem Marokkóum þótti Senegalar hafa gefið leikinn með því að fara af leikvelli. Niðurstaðan þá í janúar var sú að Senegal væri réttmætur meistari. Titlinum var vel fagnað og hundruðir þúsunda fögnuðu titlinum í höfuðborginni Dakar og víðar um landið. Kastar rýrð á afrískan fótbolta Nú, tveimur mánuðum síðar, komst áfrýjunardómstóll Afríska knattspyrnusambandsins, CAF, að þeirri niðurstöðu að Senegalar hefðu sannarlega gefið leikinn með því að fara af velli. Marokkó því dæmdur 3-0 sigur í úrslitunum og þar með Afríkumeistarar. Í yfirlýsingu Knattspyrnusambands Senegal á samfélagsmiðlinum X er sú niðurstaða sögð „ranglát, fordæmalaus og óásættanleg“. Hún „kasti jafnframt rýrð á afrískan fótbolta“. „Til að verja réttindi og hagsmuni senegalsks fótbolta mun sambandið, eins fljótt og auðið er, hefja áfrýjunarferli fyrir Íþróttadómstólnum í Lausanne,“ sagði í yfirlýsingunni jafnframt.
Afríkukeppnin í fótbolta Senegal Marokkó Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Sjá meira