Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 17. mars 2026 19:31 Berglind Gunnarsdóttir Strandberg framkvæmdastjóri Foreldrahúss óttast að starfsemin í núverandi mynd leggist af komi ekki til fjármagns frá ríkinu. Vísir/Bjarni Óvissa er um framtíð Foreldrahúss eftir að stjórnvöld neituðu að halda áfram að styrkja starfsemina að sögn framkvæmdastjóra. Ekki náist í barnamálaráðherra. Staðan sé sorgleg fyrir félagið sem fagni fjörutíu ára afmæli í ár.
Á bilinu 1500- 1800 foreldrar koma árlega í ráðgjöf til Foreldrahúss vegna vímuefnavanda um sex hundruð ungmenna. Berglind Gunnarsdóttir Strandberg framkvæmdastjóri segir að málaflokkurinn hafi þyngst mikið síðustu ár. „Alls komu fjórtán tólf ára börn hingað í fyrra og það er algjört met,“ segir Berglind. Hún segir að félagið sé að mestu rekið fyrir opinbert fé eins og styrki frá Reykjavíkurborg, Lýðheilsusjóði og frá ríkisstjórn. Ríkið hafi styrkt félagið um tólf milljónir í fyrra, ríflega þrjátíu milljónir árið 2024 og 23 milljónir árið 2023. Nú sé staðan hins vegar önnur. „Við höfum fengið höfnun á styrkjum frá Ölmu og Ragnari og það næst ekki í Ingu Sæland barnamálaráðherra. Þannig að við erum í vondri stöðu núna,“ segir hún. Höfnun frá félagsmálaráðuneytinu kom fyrir nokkrum dögum og barst frá heilbrigðisráðuneytinu í febrúar. Berglind segir að komi ekki fjármagn frá ríkinu fyrir þetta rekstrarár þurfi að skella núverandi starfsemi í lás. „Við sjáum ekki að við getum haldið áfram starfseminni eins og hún er rekin núna. Það er alveg augljóst að við getum það ekki,“ segir hún. Berglind segir að ákveðið hafi verið að blása til stjórnarfundar í dag vegna stöðunnar þar sem hinar ýmsu sviðsmyndir verði á borðinu. „Það er stjórnarfundur á eftir og þá verður staðan tekin, við getum ekki haldið áfram svona,“ segir hún. Ekkert muni taka við Berglind segir að þrátt fyrir að forsætisráðuneytið hafi í dag birt tillögur um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda sé ekkert að finna þar um þjónustu eins og Foreldrahús sinni. Ekkert muni taka við leggist starfsemin af. „Það er ekkert sambærilegt úrræði í kerfinu. Við erum eina úrræðið fyrir foreldra með börn í þessum vanda,“ segir hún. Samtökin vímulaus æska sem halda utan um Foreldrahús voru stofnuð árið 1986. Berglind er vonsvikin með stöðuna á 40. ára afmælisárinu. „Það er náttúrulega sorglegt að geta ekki fagnað því að hafa lifað i 40 ár með það að markmiði að hjálpa börnum og foreldrum þar sem vímuefnavandi er að koma í ljós,“ segir hún að lokum.
Fíkn Börn og uppeldi Félagsmál Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira