Klæddist fimm kílóum af mannahárum Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 17. mars 2026 09:38 Raunveruleikastjarnan Lisa Rinna klæddist fimm kílóum af mannahárum um helgina. Getty Raunveruleikastjarnan Lisa Rinna úr þáttunum Raunverulegar húsmæður Beverly Hills vakti mikla athygli í Óskarspartýi Eltons John á sunnudagskvöld. Lisa, sem er orðin eins konar tískugoðsögn í Hollywood, er þekkt fyrir að fara eigin leiðir í tískunni og sýndi það og sannaði þarna.
Lisa Rinna er fædd árið 1963 og fyrir aldamót gerði hún garðinn frægan fyrir hlutverk sitt í dramaþáttunum Days of Our Lives. Hún hefur verið gift leikaranum Harry Hamlin frá árinu 1997 og hæðir og lægðir hjónabandsins verið afþreyingarefni fyrir alþjóð. Lisa Rinna glæsileg í fimm kílóum af mannahárum.Kayla Oaddams/FilmMagic Raunveruleikaþættirnir skutu henni upp á alþjóðlega stjörnuhimininn upp úr 2010 og undanfarin ár hefur hún verið tíður gestur á tískuvikum hjá eftirsóttustu hátískuhúsum heims. Þá eiga hún og Harry tvær dætur, Amelia Gray og Delilah Belle, sem hafa báðar getið af sér gott orð sem fyrirsætur. Þannig að Lisa Rinna hefur verið samþykkt inn í hátískusamfélagið og nýtur þess að klæðast rándýrri elegant hönnun óháð þægindum. Á sunnudag rokkaði hún sérsniðinn kjól sem sker sig frá öðrum þar sem hann er gerður úr fimm kílóum af mannahári. „Ertu að grínast í mér, sjáið hvað þetta er gullfallegur kjóll,“ sagði Lisa á myndbandi í Instagram hringrás sinni. „Þetta verður æðislegt, ég hef aldrei verið með svona mikið hár.“ View this post on Instagram A post shared by L I S A R I N N A (@lisarinna) Þessi galakjóll var búinn til af sextán manna teymi og það tók heila 152 klukkutíma að klára hann.
Tíska og hönnun Hollywood Óskarsverðlaunin Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun „Erum bara vinir“ Lífið Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Fleiri fréttir Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Stundum gott að fara öruggu leiðina Sturluð skvísulæti í stórafmæli Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Verður að geta hent sér í hnébeygju Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað „Það er smá töffari í mér“ Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Sjá meira