Atvinnulíf

„Annar er létt geggjaður og skemmti­legur og hinn al­veg grjót­harður“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Vatn og vítamín er það fyrsta sem Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, fær sér á morgnana. Sem horfir á flestallar íþróttir og jafnvel þannig að stundum fer hann of seint að sofa því hann á eftir að horfa á eitthvað. 
Vatn og vítamín er það fyrsta sem Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, fær sér á morgnana. Sem horfir á flestallar íþróttir og jafnvel þannig að stundum fer hann of seint að sofa því hann á eftir að horfa á eitthvað.  Vísir/Einar Árnason

Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir morgnana frekar einfalda rútínu en viðurkennir að fara of seint að sofa. Þá kalli á að horfa á íþróttir eða ókláraðan þátt. Hetjur úr gömlum bíómyndum eru annars vegar einn grjótharður og hins vegar einn létt geggjaður.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Vekjaraklukkan hringir klukkan 7.10 en ég byrja alltaf á að „snooze-a. Er svo yfirleitt kominn fram úr sirka tíu mínútum síðar.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ætli stærsta verkefnið á morgnanna sé ekki að hjálpa yngsta drengnum að byrja daginn. Vatn og vítamín í kjölfarið og svo skutla ég drengjunum mínum í skólann. Frekar einföld rútína.“

Hvaða hetja úr bíómynd stendur alltaf upp úr hjá þér í minningunni?

„John McClane úr Die Hard-myndunum og William Wallace í Braveheart koma upp í hugann. Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður að berjast fyrir frelsinu. 

Annars er ég miklu meira í því að horfa á flestallar íþróttir og þá helst handbolta og leiki Manchester United.“

Brynjari finnst í raun svolítið gaman af smá kaótík. En segir dagana þó um margt stjórnast af því sem er skráð í dagatalið. Vísir/Einar Árnason

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana?

„Við Kristján Elvar Guðlaugsson hófum rekstur á nýju félagi, Gosfélaginu, síðastliðið haust. Það eru aðeins tvö íslensk fyrirtæki sem framleiða íslenska gosdrykki þannig að við ætlum að hasla okkur völl á þeim markaði. 

Við erum núna að koma upp drykkjarvöruverskmiðju til að framleiða drykki eins og Klaka og Djúsí Klaka og tekur uppsetningin ansi mikið af mínum tíma þessa dagana. En þetta er mjög skemmtilegt og krefjandi verkefni sem vonandi kemur til með að ganga vel næstu árin.

Svo er ég í sjálfboðavinnu fyrir handknattleiksfélagið en annars ver ég tíma mínum með fjölskyldunni.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Ansi margt stjórnast af dagatalinu í pósthólfinu hjá mér. Annars hef ég yfirleitt gaman af smá kaótík og í þeirri vegferð sem í gangi í dag þá er eins gott að vera opinn fyrir hverju sem er.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég fer yfirleitt frekar seint í háttinn enda er ekkert betra en að eiga smá tíma á kvöldin í smá áhorfi á íþróttaefni eða þætti sem ég á eftir að horfa á.“


Tengdar fréttir

Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna

Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, átti það til að mála sig í bílnum á leiðinni í vinnuna en er nú farin að vera duglegri að hafa sig til heima áður en hún leggur af stað. Sylvía gefur sjálfri sér 7-8 í einkunn fyrir handlagnina heima fyrir.

„Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“

Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi.

Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn

Elínu Tinnu Logadóttur, framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi, finnst voða notalegt að fara í bað áður en restin af heimilisfólkinu vaknar á morgnana. Þá þegar búin að renna í gegnum helstu tölur gærdagsins.

Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu

Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×