Tvisvar markakóngur fyrir tvítugt Sindri Sverrisson skrifar 13. mars 2026 13:00 Baldur Fritz Bjarnason raðaði inn mörkum fyrir ÍR en er nú á leið í atvinnumennsku til Svíþjóðar. Vísir/Anton Brink Þrátt fyrir að hafa misst af síðustu leikjum tímabilsins vegna meiðsla þá er ÍR-ingurinn ungi Baldur Fritz Bjarnason markakóngur Olís-deildarinnar í handbolta, annað árið í röð.
Baldur er aðeins 19 ára en er á leið í atvinnumennsku í Íslendingabæinn Kristianstad í Svíþjóð í sumar. Þangað fer hann sem tvöfaldur markakóngur því hann endaði aftur markahæstur í ár, með alls 162 mörk í 19 leikjum eða 8,5 mörk að meðaltali í leik. Í fyrra, á sínu fyrsta tímabili í efstu deild, skoraði Baldur reyndar enn fleiri mörk eða 211 talsins, í 22 leikjum, sem gerir 9,59 mörk að meðaltali í leik og mun vera met. Þrátt fyrir mörk Baldurs urðu ÍR-ingar að sætta sig við fall úr Olís-deildinni í gær, aðeins stigi á eftir Stjörnunni sem nú fer í fallumspil við lið úr Grill 66-deildinni. Baldur spilar hins vegar í sænsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð, ein sog fyrr segir. „Fyrst og fremst held ég að það sé ótrúlega mikilvægt fyrir mig að fara núna út. Sérstaklega því þá get ég bara einbeitt mér að því að vera handboltamaður, líf mitt snýst þá bara um að verða eins góður og ég get verið í handbolta í staðin fyrir að vera í skóla eða annarri vinnu með. Ég ætla vera með fulla einbeitingu á þessu næstu tvö ár, einbeita mér hundrað prósent að Kristianstad, gera eins vel og ég get, verða eins góður og ég get,“ sagði Baldur í viðtali við Vísi í síðasta mánuði. Valur tryggði sér deildarmeistaratitilinn í gær og mætir HK í 8-liða úrslitum. FH mætir Fram, Haukar mæta Aftureldingu og ÍBV mætir KA. KA-maðurinn Bjarni Ófeigur Valdimarsson kom að flestum mörkum í deildarkeppninni því hann átti flestar stoðsendingar, eða 122 talsins, og skoraði 147 mörk, í 19 leikjum. Aðeins Baldur og Selfyssingurinn Hannes Höskuldsson, með 154 mörk í 21 leik, skoruðu fleiri mörk í vetur. Ítarlega tölfræði úr deildinni má nálgast á vef HB Statz.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira