Handbolti

„Þetta er svo­lítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Camilla Herrem fagnar marki með norska handboltaliðinu Sola þar sem hún hefur spilað síðustu ár.
Camilla Herrem fagnar marki með norska handboltaliðinu Sola þar sem hún hefur spilað síðustu ár. @solahk

Norska handboltakonan Camilla Herrem hefur sigrast á krabbameininu en hún vakti mikla athygli þegar hún fór að spila handbolta aftur um leið og hún lauk lyfjameðferðinni.

Herrem tilkynnti sjálf að hún væri laus við krabbameinið en það gerði hún í samtali við Nettavisen á bleika dreglinum fyrir Villoid-verðlaunin um konur ársins í Noregi 2026.

Handboltakonan var þar tilnefnd til verðlaunanna „Kona ársins“.

Hin 39 ára gamla Herrem sagði frá því í júní 2025 að hún hefði greinst með brjóstakrabbamein.

„Það gengur mjög vel. Ég er í fínu formi. Það gengur vel í handboltanum, með fjölskyldunni og mér, svo ég get ekki kvartað. Ég er laus við krabbamein, eins og það er kallað. Ég fékk niðurstöður eftir aðgerðina og þá hafði ekkert mein nýtt fundist,“ sagði Camilla Herrem við Nettavisen.

„Þetta er svolítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt þegar ég segi þetta upphátt, en ég hef vitað þetta síðan í desember. Mér líður mjög vel og það hefur gengið vel síðan í aðgerðinni,“ sagði Herrem.

Herrem er ein sigursælasta handboltakona Noregs frá upphafi með 332 landsleiki og 951 mark á árunum 2006 til 2024. Á því tímabili var hún með í að vinna ellefu  gullverðlaun á stórmótum, þar á meðal tvö Ólympíugull.

Hún hætti í landsliðinu á sama tíma og Þórir Hergeirsson hætti sem þjálfari en Herrem var landsliðskona allan tíma Selfyssingsins með liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×