„Var bara skemmtilegt og það voru allir að hafa gaman“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 12. mars 2026 21:35 Veigar Páll Alexandersson fyrirliði Njarðvíkur. Vísir/Anton Njarðvík vann í kvöld 110-78 stórsigur á Valsmönnum þegar þessi lið mættust í 20. umferð Bónus deild karla í kvöld. Leikur sem aldrei var í neinni hættu. Veigar Páll Alexandersson fyrirliði Njarðvíkur ræddi við Vísi eftir leik. „
Risastór, geggjað að ná þessum sigri“ sagði Veigar Páll Alexandersson eftir sigurinn í kvöld. „Við spiluðum mjög vel, Rúnar [Ingi Erlingsson] setur upp gott varnarplan og okkur tekst að gera þetta þokkalega vel og ég held að það hafi skilað þessum sigri“ Njarðvíkingar voru að hitta mjög vel í kvöld en þeir settu 18 þriggja stiga körfur í kvöld og voru að skjóta 54% fyrir aftan þriggja stiga línuna. „Algjörlega, gaman að sjá Sven [Smajlagic] komast aðeins í gang og ég þarna aðeins í fyrri. Þetta var bara geggjað“ Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkinga sagði eftir síðasta leik að hans menn gætu nú mætt til leiks með minni hræðslu og meiri spennu eftir að það var ljóst að falldraugurinn væri ekki lengur til staðar. „Menn voru bara aðeins léttari og menn gátu andað aðeins léttar eftir síðustu umferð. Þetta var bara geggjað skemmtilegt og það voru allir að hafa gaman og bara snilld að ná þessum sigri“ Þessi sigur gefur Njarðvíkurliðinu helling fyrir framhaldið. „Hann gefur okkur mikið. Við erum bara tilbúnir í þessa næstu tvo leiki og ætlum okkur í úrslitakeppnina“ Stuðningurinn sem Njarðvík fékk í kvöld úr stúkunni var gríðarlega góður og mátti sjá þetta skila sér inn á völlinn. „Það er bara allt. Það er einn leikur í Þorlákshöfn, ég vona að flestir mæti á þá og svo er leikur á móti Keflavík þar sem við ætlum að fylla þessa stúku“ sagði Veigar Páll Alexandersson.
UMF Njarðvík Körfubolti Bónus-deild karla Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Sjá meira