Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. mars 2026 11:56 Orbán hefur verið sakaður um að notfæra sér deilurnar við Úkraínu til að afla sér samúðar meðal kjósenda. Getty/Nicolas Economou Victor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur sakað yfirvöld í Úkraínu um að skipuleggja árásir á fjölskyldu sína. Andstæðingar Orban segja ásakanirnar lið í kosningabaráttu Orban.
Stjórnvöld í Úkraínu og Ungverjalandi hafa staðið í hatrömmum deilum en Orbán er helsti stuðningsmaður Valdimir Pútín innan Evrópusambandsins. Úkraínumenn greindu nýlega frá því að það myndi taka nokkrar vikur að gera við leiðslur sem flytja olíu frá Rússlandi til Ungverjalands, sem þeir segja hafa skemmst í drónaárásum Rússa. Ungverjar svöruðu með því að beita neitunarvaldi sínu varðandi tillögur um frekari refsiaðgerðir gegn Rússum og 90 milljarða evra lán til Úkraínu. Þá stöðvuðu þeir tvær brynvarðar bifreiðar á vegum úkraínska bankans Oschadbank, handtóku sjö Úkraínmenn og lögðu hald á innihald bifreiðanna. Þær eru sagðar hafa verið að flytja tugir milljóna evra í reiðufé og níu kíló af gulli frá Vín til Kænugarðs. Yfirvöld í Búdapest hafa gert því skóna að um sé að ræða lið í peningaþvætti en ráðamenn í Kænugarði segja þetta hafa verið hefðbundna flutninga sem yfirvöld hefðu verið upplýst um. „Hafa hótað ekki bara mér heldur þér líka“ Nýjasta útspilið í deilunum er myndskeið sem Orbán birti í gær, þar sem hann virðist vera að ræða við dóttur sína. „Ég er viss um að þú munt sjá það í fréttum að Úkraínumennirnir hafa hótað ekki bara mér heldur þér líka,“ segir Orbán, að því er virðist í tilfinningalegu uppnámi. „Börnin mín og barnabörn... við verðum að taka þetta alvarlega en við megum ekki vera hrædd,“ segir hann. Vólódimír Selenskí Úkraínuforseta hefur sannarlega hótað því að deila heimilisfangi Orbán með hersveitum landsins en ummælin eru sögð hafa vakið hörð viðbrögð meðal bandamanna Úkraínu í Evrópu. Gengið verður til kosninga í Ungverjalandi þann 12. apríl næstkomandi. Hann segir sigur stjórnarandstöðunnar myndu þýða að Ungverjar yrðu dregnir inn í átökin við Rússland. Valið í kosningunum standi í raun milli hans og Selenskís. Guardian greindi frá.
Innrás Rússa í Úkraínu Ungverjaland Úkraína Evrópusambandið Rússland Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira